Hin
árlega folaldasýning Hrossaræktarsambands Vesturlands verður haldin í
Reiðhöllinni að Vindási í Borgarnesi laugardaginn 14. nóvember og hefst
klukkan 13. Þar verður keppt í kynjaskiptum flokkum. Skráning fer fram
í gegnum tölvupóst á: hrossvest@hrossvest.is og kostar 1.000 krónur
fyrir folaldið. Í frétt frá sambandinu segir að skrá verði nafn, lit,
fæðingarstað, föður, móður, ræktanda og eiganda. Skráningu skal vera
lokið fyrir miðvikudagskvöldið 11. nóvember. Skráningargjald leggst inn
á reikning nr. 0354-26-2813 kt. 640169 2739. "Komið og spáið í
ræktunargripi framtíðarinnar á Vesturlandi," segir í tilkynningu frá
Hrossaræktarsambandi Vesturlands.
|