Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu

01.11.2009 11:31

Snæfell tapaði í vesturbænum

KR stúlkur lögðu Snæfell

Snæfellsstúlkurnar fóru í vesturbæinn og mættu sterku liði KR sem spáð var 1. sæti deildarinnar. KR byrjaði með látum og komust í 16-2 og leiddu út úr fyrsta hluta 20-8. Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir og Signý Hermannsdóttir fóru fyrir sínu liði.

Staðan í hálfleik var 37-14 og voru KR stúlkur einfaldlega tveimur númerum of stórar og þær héldu Snæfelli aftur undir 10 stigum í öðrum hluta sem fór 17-6.

 

Það er skemmst frá því að segja að þriðji hluti var eins og tveir fyrri þar sem KR yfirgnæfði Snæfell og þegar staðan var 46-16 þurfti ekkert að velta sér upp úr styrk KR stúlkna en þær unnu hlutann 16-10 og leiddu 53-24 fyrir fjórða hluta. Allir leikmenn beggja liða komu við sögu í leiknum og settu eitthvert mark sitt á leikinn. Leikurinn endaði svo 69-37 fyrir KR.

 

Hjá KR var Signý Hermanns með 16 stig og 6 frák. Unnur Tara 11 stig og 9 frák. Margrét Kara 9 stig.

 

Hjá Snæfelli var Berglind með 11 stig. Kristen Green 10 stig , 11 frák og 5 stoð. Hrafnhildur 6 stig og 5 frák. Sara 4 stig og 5 frák. Björg Guðrún, Rósa og Helga Hjördís með 2 stig hver og Helga með 6 frák. Ellen, Unnur og Hildur komu við sögu en skoruðu ekki.

 

Vafraðu um

HSH

Nafn:

Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu

Farsími:

865-0294

Afmælisdagur:

24 september 1922

Heimilisfang:

Sólvellir 3. 350 Grundarfirði

Heimasími:

436-1635

Önnur vefsíða:

umfi.is

Kennitala:

620169-5289

Bankanúmer:

0191-15-370322

Tenglar

Flettingar í dag: 519
Gestir í dag: 88
Flettingar í gær: 632
Gestir í gær: 101
Samtals flettingar: 825802
Samtals gestir: 85932
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 19:29:08
Flettingar í dag: 519
Gestir í dag: 88
Flettingar í gær: 632
Gestir í gær: 101
Samtals flettingar: 825802
Samtals gestir: 85932
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 19:29:08