|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
30.10.2009 16:15Snæfell fær nýjan leikstjórnandaSean Burton
![]() Snæfell hefur verið í viðræðum við 22 ára leikstjórnandann Sean Burton en hann kemur frá Yorkville, Utica í New york fylki. Það er skemmst frá því að segja að hann er væntanlegur eftir vikutíma eða svo en pappírsvinna er í gangi og kemur hann þegar allt er klárt.
Sean Burton lék með Itcha Bombers hjá Itcha háskólanum í New York fylki og var hann með 22.4 stig og 7 stoðsendingar að meðaltali á síðustu leiktíð. Sean hefur leikið með Itcha síðustu 4 árin og verið þeirra allra fremsti leikmaður og setti hin ýmsu met hjá skólanum. Þetta er öflugur og sprækur strákur sem Snæfellingar binda vonir um að styrki liðið ásamt því að falla vel inn í þéttann hóp. Sean stundaði líka fótbolta á sínum yngri árum og var þar í fremstu röð í skólanum sínum Notre Dame high school.
Við fengum viðbrögð frá Inga Þór þjálfara sem sagði: "Það verður spennandi að fá Sean til liðs við okkur en þetta er strákur sem er að koma beint úr skóla. Sean mun leysa leikstjórnandastöðuna fyrir okkur sem Pálmi Freyr og Gunnlaugur Smára hafa séð um hjá liðinu. Með tilkomu Sean þá erum við ekkert að sigra heiminn, þetta er strákur sem ætlar að hjálpa Snæfell til að sækja að toppnum og verða betri og betri." Nánar á Snaefell.is Skrifað af Garðar |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 454 Gestir í dag: 90 Flettingar í gær: 586 Gestir í gær: 147 Samtals flettingar: 826953 Samtals gestir: 86201 Tölur uppfærðar: 7.2.2012 19:24:45 |