Ljósmyndasamkeppni Ferðafélags Íslands
Ferðafélag
Íslands efnir til ljósmyndasamkeppni sem er öllum opin. Hver keppandi
skal senda eigi fleiri en þrjár myndir á netfangið:
fi@fi.is Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Skilafrestur
ljósmynda er til 1.des. 2009 og keppt er í tveimur flokkum. Í öðrum
flokknum er leitað eftir myndum sem teknar eru í ferðum á vegum
Ferðafélags Íslands en í hinum flokknum geta verið ljósmyndir almenns
eðlis en þær skulu sendar á sama netfang innan sömu tímamarka.
Niðurstöður
í samkeppninni verða kynntar 22. desember 2009 en dómnefnd verður
skipuð fagmönnum í fremstu röð á sviði ljósmyndunar. Sigurvegarar fá
vegleg verðlaun sem eru stafræn myndavél frá Nikon og sumarleyfisferð
með Ferðafélagi Íslands að eigin vali fyrir tvo.