|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
27.10.2009 18:39Blak 2 deild karlaÍ gær tóku UMFGrundarfjarðar á móti Fylki í 2 deild karla í blaki. Fylkismenn tóku leikinn strax í sínar hendur og unnu leikinn 3-1 ( 25-17, 25-14, 21-25, og 25-15) Í 1 hrinu voru heimamenn mjög óákveðnir í sínum leik, móttakan var léleg og kom það mikið niður á uppspilinu þannig að ekki náðist að klára sóknir með krafti. í 2 hrinu var staðan sú sama og eins að heimamenn væru að gefast upp. Áhorfendur sem voru um 90 reyndu að vekja leikmenn og virkaði það aðeins i 3 hrinu sem Grundfirðingar unnu sannfærandi. En svo var allt loft úr þeim aftur og Fylkismenn lönduð auðveldum sigri í 4 hrinu. Dómarar leiksins Viðar Gylfason og Garðar Svansson stóðu sig vel í sínum fyrsta leik. Sem fyrr voru áhorfendur og trommuliðið á sýnum stað en heimamenn náðu ekki að nýta sér það í þessum leik og ljóst að leikur liðsins þarf að batna mikið ef þeir ætla að fara vinna leiki í vetur. Skrifað af Garðar |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 521 Gestir í dag: 88 Flettingar í gær: 632 Gestir í gær: 101 Samtals flettingar: 825804 Samtals gestir: 85932 Tölur uppfærðar: 5.2.2012 19:23:19 |