Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu

Fréttir

23.10.2009

Íþróttamaður HSH 2009

Íþróttamaður HSH 2009

Ágætu sambandsaðilar,

Stjórn HSH óskar eftir tilnefningum til íþróttamanns HSH 2009 í samræmi við reglugerðu um íþróttamann HSH.

Tilnefningum skal skila til skrifstofu HSH,

HSH

Sólvöllum 3, pósthólf 96

350 Grundarfirði

Eða á netfangið hsh@hsh.is

REGLUGERÐ UM ÍÞRÓTTAMANN HSH

1.grein

Héraðssamband Snæfellsness- og Hnappadalssýslu  veitir árlega heiðursviðurkenninguna "ÍÞRÓTTAMAÐUR HSH" þeim íþróttamanni á sambandsvæði HSH, sem þótt hefur skara fram úr á íþróttasviðinu á því ári. Viðurkenning þessi er tengd minningu Pálma Frímannsssonar.

2.grein

 Þeim íþróttamanni sem valinn er "íþróttamaður HSH" skal afhentur bikar til varðveislu í eitt ár. Auk þess skal hann fá minni grip til eignar.

3.grein

Aðildarfélög HSH skili árlega tilnefningu eins íþróttamanns hverrar iðkaðrar greinar viðkomandi félags, til aðalstjórnar eigi síðar en 10. nóvember.  Með tilnefningunni skal fylgija greinargerð um íþróttalegan árangur, svo sem met, ástundun við æfingar og fl.   Miðað skal við viðkomandi sé 15 ára og eldri. Hvert fagráð velur íþróttamann sinnar greinar úr tilnefningum sem borist hafa frá aðildarfélögum.

4.grein

Aðalstjórn HSH kalli saman kjörfund vegna íþróttamanns HSH eigi síðar en 10 desember ár hvert.  Atkvæðisrétt á fundinum hafi stjórn og varastjórn HSH, formenn fagráða HSH, ásamt einum fulltrúa frá hverju aðildarfélagi HSH.  Atkvæðagreiðsla skal vera leynileg.

5.grein

Kosning fari þannig fram, kjörmenn riti 3 nöfn á sinn kjörseðill. Kjörseðill telst einungis gildur með 3 nöfnum. Ef 2 eða fleiri eru jafnir að kosningu lokinni skal kjósa milli þeirra þar til úrslit fást.

6.grein

Útnefning íþróttamanns HSH fari fram á héraðsþingi HSH eða við annað tækifæri sem stjórn ákveði.


Skrifað 23.10.2009 kl. 16:12 af Garðar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Vafraðu um

HSH

Nafn:

Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu

Farsími:

865-0294

Afmælisdagur:

24 september 1922

Heimilisfang:

Sólvellir 3. 350 Grundarfirði

Heimasími:

436-1635

Önnur vefsíða:

umfi.is

Kennitala:

620169-5289

Bankanúmer:

0191-15-370322

Tenglar

Flettingar í dag: 160
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 2114
Gestir í gær: 92
Samtals flettingar: 244486
Samtals gestir: 19975
Tölur uppfærðar: 1.8.2010 01:02:15

Eldra efni