|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
21.10.2009 12:42Ásdís Helga kveður stjórn UMFÍGefandi og skemmtilegur tími Ásdís Helga er lektor og verkefnastjóri við endurmenntun Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri. Hún er ennfremur í æskulýðsráði og formaður tómstunda- og menningarnefndar Borgarbyggðar. Það lá beinast við að spyrja hana ef hún liti yfir farinn veg hvernig tímarnir hefðu verið í stjórn UMFÍ. ,,Tíminn í stjórninni er búinn að vera frábær. Það er gaman að horfa yfir öll þau verkefni sem framkvæmd hafa verið á þessu tímabili og hversu margir hafa tekið þátt í þeim. Þetta er búið að vera gefandi og skemmtilegt starf og á þessum tíma hefur maður kynnst fullt af góðu fólki og farið víða," sagði Ásdís Helga. - Hvað finnst þér standa upp úr þegar þú lítur til baka? ,,Það fyrsta sem kemur upp í hugann er hvað vel hefur tekist til með unglingalandsmótin, ungmenna- og tómstundabúðirnar að Laugum og líka hvað fólk hefur verið virkt í verkefninu Göngum um Ísland. Fólk hefur verið duglegt að ganga á fjöll og hreyfa sig almennt sem er hið besta mál." Ásdís Helga segist alltaf verða ungmennafélagi og ætlar áfram að fylgjast með og koma með góðar ráðleggingar.
Mynd: Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, færði Ásdísi Helgu blómvönd og þakkaði henni fyrir góð störf á sambandsþingi UMFÍ í Reykjanesbæ. Skrifað af Garðar |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 471 Gestir í dag: 93 Flettingar í gær: 586 Gestir í gær: 147 Samtals flettingar: 826970 Samtals gestir: 86204 Tölur uppfærðar: 7.2.2012 20:04:43 |