Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu

18.10.2009 19:58

EM fatlaðra í sundi

Frá setningarathöfninni.

EM sett með glæsibrag í Laugardalslaug


Setningarathöfn Evrópumeistaramóts fatlaðra í sundi tókst með miklum myndarbrag í innilauginni í Laugardal í gærkvöld. Keppni á mótinu hófst kl. 9 í morgun með undanrásum og úrslit hefjast svo kl. 17:00.

Troðfullt var í innilauginni þar sem Regína Ósk tók m.a. lagið, trúðar skemmtu gestum og Brassbandið lék ljúfa tóna fyrir athafnargesti ásamt mörgum öðrum mögnuðum sýningaratriðum. Að athöfn lokinni héldu keppendur, þjálfarar og fleiri í Laugardalshöll en þar er matsalur mótsins staðsettur og mikið verður þar um að vera á matmálstímum næstu vikuna enda nærri 700 manns skráðir til leiks.

Sundmennirnir Hrafnkell Björnsson og Jón Margeir Sverrisson voru fulltrúar Íslands í inngöngu setningarathafnarinnar og uppskáru mikið og gott lófatak áhorfenda þegar þeir gengu inn í salinn með íslenska fánann.

Á meðal keppenda í dag eru tveir íslenskir sundmenn, þau Sonja Sigurðardóttir og Hjörtur Már Ingvarsson. Bæði keppa þau í 50 metra skriðsundi.

Vafraðu um

HSH

Nafn:

Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu

Farsími:

865-0294

Afmælisdagur:

24 september 1922

Heimilisfang:

Sólvellir 3. 350 Grundarfirði

Heimasími:

436-1635

Önnur vefsíða:

umfi.is

Kennitala:

620169-5289

Bankanúmer:

0191-15-370322

Tenglar

Flettingar í dag: 488
Gestir í dag: 85
Flettingar í gær: 632
Gestir í gær: 101
Samtals flettingar: 825771
Samtals gestir: 85929
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 18:44:02
Flettingar í dag: 488
Gestir í dag: 85
Flettingar í gær: 632
Gestir í gær: 101
Samtals flettingar: 825771
Samtals gestir: 85929
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 18:44:02