17.10.2009 17:03
Snæfell á siglingu
Njarðvíkurstúlkur
voru yfir til að byrja með 0-3 en þegar 2 mín voru liðnar komst Snæfell
á blað og jöfnuðu 6-6 og svo 8-8. Varnir beggja liða var stíf til að
byrja með og sérstaklega hjá gestunum grænu sem voru grimmari í byrjun.
Kristen Green kom Snæfelli á sporið með tveimur þristum og var komin
með 10 stig þegar 2 mín voru eftir af fyrsta fjórðung. Leikur var þó
jafn fyrsta hlutann þó Snæfell hafi verið skrefi framar 21-17.
Annar
hluti var mjög jafn og hart barist um hvern bolta þar sem bæði lið
spiluðu fast. Bæði liðin ætla sér að berjast um hvert stig sem í boði
er. Snæfell hélt sinni forystu vel og bætti aðeins í þrátt fyrir alltof
mörg mistök í sókn seinni part hlutans sem skrifast einnig á seigar
Njarðvíkurstelpur. Snæfell komst þó í 10 stiga forystu 40-30 með þrist
frá Berglindi en Ína María Einarsdóttir setti eina ískalda á flautunni
fyrir Njarðvík og staðan 40-33 í hálfleik.
Hjá
Snæfelli var Kristen Green komin með 22 stig og Berglind 10 stig en hjá
Njarðvík voru fleiri sem komu að stigaskorun og var Helga komin með 8
stig, Ólöf 7 stig, Ína 6 stig og Sigurlaug 5 stig, 7 frák og 4 stoðs.
Njarðvík
kom með látum inn í byrjun seinni hálfleiks og komust nær 42-40 með
brjálaðri vörn og skipulögðum sóknarleik sem skilaði þeim svo
jöfnunarkörfu 48-48. Mikil harka var í leiknum og fuku villur á
leikmenn, aðllega Snæfells þó. Kristen Green hélt sínu liði á floti
komin með 28 stig en Ólöf hjá Njarðvík með 15 og staðan var 57-52 fyrir
Snæfell fyrir lokahlutann.
Aftur komu
Njarðvíkurstúlkur hressar í byrjun hlutans og náðu að jafna 59-59 og
svo 61-61 Nokkurt fát kom á Snæfellsstúlkur í sóknarleiknum aðallega og
svo fór Hrafnhildur Sævardóttir útaf með 5 villur og Kristen Green var
með komin með 4 villur þegar 3 mín voru eftir og staðan 64-63 fyrir
Snæfell. Njarðvík var samstillt og hélt haus en voru að mæta góðri vörn
Snæfells einnig í lokin og setti Kristen 3 fyrir Snæfell og staðan var
67-63 lokamínútuna. Njarðvík braut af sér í lokin og kláraði Kristen
Green af vítalínunni og sigraði Snæfell sinn annann leik 69-63.
Hörkuleikur
beggja liða sem gat endað hvoru megin sem er. Hjá Snæfelli var Kristen
Green með 36 stig og 10 fráköst og var allt í öllu. Berglind 12 stig og
Gunnhildur 10 stig. Hjá Njarðvík var Ólöf drjúg með 20 stig. Helga 11
stig og 12 frák. Sigurlaug 9 stig og 12 frák. Harpa Hallgrímstók 12
frák.
Símon B Hjaltalín.
Mynd: Eyþór Benediktsson