Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu

15.10.2009 21:25

Uppskeruhátíð Víkings

Lokahóf Víkings Ólafsvík 2009

Lokahóf Víkings var haldið með pomp og prakt  laugardagskvöldið 3 október í Félagsheimilinu Klifi Ólafsvík. Útnefndir voru efnilegustu- og bestu leikmennirnir auk þess sem sem markhæsti leikmaður liðsins fékk viðurkenningu. Veislustjóri kvöldsins var Gunnar Örn Arnarson og á boðstólunum voru dýrindis krásir sem reiddar voru fram af sælkerakokkunum Alla Netó, Lalla Löggu og Stebba Fera(Furu:)

Efnilegsti leikmaður Víkings árið 2009 var kjörinn Brynjar Gauti Guðjónsson en auk þess að spila með Víkingum tók Brynjar þátt í hinum ýmsu verkefnum með U-18 landsliði Íslands þar sem hann var fastur byrjunarliðsmaður.

Bestur að mati leikmanna Víkings var kosinn Tryggvi Hafsteinsson sem spilaði vel í hægri bakvarðarstöðu liðsins á liðnu sumri. Tryggvi sem undanfarin sumur hefur glímt við þráðlát meiðsli hélt sér heilum í allt sumar og spilaði nær alla leiki liðsins.

Markahæsti leikmaður liðsins var svo Fannar Hilmarsson með 6 mörk og fékk hann viðurkenningu fyrir þann glæsilega árangur. Ekki er hægt að segja að Fannar sé að upplagi framherji en hann fyllti svo sannarlega í skarð Josip Marosevic sem yfirgaf liðið á miðju sumri.

Í ræðu formanns (Jónas Gestur) kom svo fram að nokkrir leikmenn liðsins hefðu skrifað undir nýja samninga en þeir eru; Þorsteinn Már Ragnarsson, Brynjar Gauti Guðjónsson og Fannar Hilmarsson. Það er nokkuð ljóst að mikilvægt er að liðið haldi sem flestum leikmönnum frá liðnu sumri til að byggja liðið upp að nýju og koma því upp um deild sem allra fyrst.

Undirritaður vill svo þakka öllum ánægjulegar stundir og samstarf á sumrinu sem nú er liðið. 

Gunnar Örn Arnarson
Picture 063          Picture 077
Tryggvi,Brynjar og Fannar taka við viðurkenningum
Picture 075          Picture 072

Picture 071          Picture 064
Tryggvi og Guðný tóku lagið                                Jónas fékk derhúfubikarinn fyrir flottasta rauða spjaldið.
Picture 047          Picture 046
Þessir vildu ekki myndatöku.               Tapliðið í Ungir vs. Gamlir
Picture 045

Vafraðu um

HSH

Nafn:

Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu

Farsími:

865-0294

Afmælisdagur:

24 september 1922

Heimilisfang:

Sólvellir 3. 350 Grundarfirði

Heimasími:

436-1635

Önnur vefsíða:

umfi.is

Kennitala:

620169-5289

Bankanúmer:

0191-15-370322

Tenglar

Flettingar í dag: 471
Gestir í dag: 93
Flettingar í gær: 586
Gestir í gær: 147
Samtals flettingar: 826970
Samtals gestir: 86204
Tölur uppfærðar: 7.2.2012 20:04:43
Flettingar í dag: 471
Gestir í dag: 93
Flettingar í gær: 586
Gestir í gær: 147
Samtals flettingar: 826970
Samtals gestir: 86204
Tölur uppfærðar: 7.2.2012 20:04:43