12.10.2009 07:31
Hinir ungu peyjar í 8. flokki kepptu í Fjárhúsinu á laugardaginn
þrjá leiki. KFÍ afboðaði komu sína á fjölliðamótið vegna veðurs þannig
að ákveðið var að keyra þetta á laugardeginum. Strákarnir í Snæfell
unnu alla sína leiki undir stjórn Hlyns Bæringssonar og áttu þeir tvo
auðvelda leiki á móti Fjölnib og Fsu en síðasti leikurinn við UMFH var
spennandi fram á lokasekúndur. Hér að neðan eru úrslit leikja Snæfells.
- Snæfell - Fjölnir b
56-23
- Snæfell -
Fsu 72-19
- Snæfell- UMFH 41-38