|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
Fréttir12.10.2009Helga Guðrún endurkjörin Helga Guðrún var ein í kjöri og reis þingheimur úr sætum og klappaði innilega fyrir henni. Helga Guðrún var fyrst kvenna í sögu hreyfingarinnar kjörin formaður fyrir tveimur árum. Um 120 þingfulltrúar sátu sambandsþingið. Fjölmörg mál og tillögur voru til umfjölunnar og afgreiðslu á þinginu. ,,Á þessari stundu er mér efst í huga þakklæti, gleði og ánægja að fá að takast á við þetta göfuga, skemmtilega og góða hlutverk næstu tvö árin. UMFÍ er hreyfing sem er að vinna öflugt starf sem skiptir svo marga máli," sagði Helga Guðrún Guðjónsdóttir. Helga Guðrún sagði að þingið hefði verið mjög málefnalegt og umræður góðar og góður andi ríkti yfir því. ,,Það eru allir sammála um það að slá skjaldborg um það starf sem við erum að vinna sem skiptir svo miklu máli á þeim tímum sem við erum að upplifa um þessar mundir. Framtíðarsýnin er að vinna áfram samkvæmt þeim göfugu markmiðum sem hreyfingin stendur fyrir. Þau eru ,,Ræktum lýðs og lands" og byggðar á ungmennafélagsandanum. Vonandi eigum eftir að upplifa aftur bjarta tíma sem gerir okkar allt miklu auðveldara. Hreyfingin er samt búin að vera undirbúa sig undir þessar aðstæður sem við búum við í dag. Ég er vongóð um að okkur takist að halda okkar striki og helst að auka starfið enn frekar því félagsmönnum fjölgar. Markmiðið alltaf er að vinna eins vel og við getum að íþrótta- og æskulýðsstarfi í landinu eins og okkur er frekar kostur," sagði Helga Guðrún Guðjónsdóttir formaður Ungmennafélags Íslands. Ný stjórn var kosin og í aðalstjórn eru Helga Guðrún Guðjónsdóttir, Björg Jakobsdóttir, Björn Ármann Ólafsson, Einar Haraldsson, Örn Guðnason, Garðar Svansson og Eyrún Hlynsdóttir. Í varastjórn voru kosin Ragnhildur Einarsdóttir, Haraldur Þ. Jóhannsson, Einar K. Jónsson. |
Vafraðu umEldra efni HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 160 Gestir í dag: 16 Flettingar í gær: 2114 Gestir í gær: 92 Samtals flettingar: 244486 Samtals gestir: 19975 Tölur uppfærðar: 1.8.2010 01:02:15 |