08.10.2009 16:42
Ágætu blakarar,
Okkur hjá blakdeild
Snæfells langar til að kanna hug ykkar varðandi blakmót helgina 14. -
15. nóv. í Stykkishólmi. Vinalið okkar úr Aftureldingu ætlar að mæta
með karla og kvennalið. Ef það er einhver áhugi hjá ykkur væri gott að
fá að vita það í tíma og einnig hversu mörg lið kæmu frá félögunum.
Mótsgjald yrði kr. 9.000 fyrir eitt lið og svo kr. 6.000 fyrir hvert
umfram lið.
Endilega látið okkur vita hvort einhver áhugi er meðal ykkar félagsmanna.í netfangið
elisabet.vald@stykk.is
Kveðja Stjórn blakdeildar Snæfells