Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu

Fréttir

8.10.2009

Íþróttamaður og meiðsli

Námskeið:

"Hvenær er Íþróttamaður tilbúinn til æfinga eftir meiðsli"

Miðvikudaginn 11. nóvember klukkan 20.00-22.00 hjá Keili á Ásbrú (Reykjanesbæ)

Ert þú eða  íþróttamaður þinn búinn að vera meiddur á hné eða ökkla? Er hann tilbúinn að spila? Ef þú ert ekki viss, viltu þá ekki bara krossa fingur, teipa og vona það besta og láta hann spila á 50% getu?

Eða viltu vita meira um hann, læra að meta hann og setja hann inn þegar hann er tilbúinn?

Miðvikudaginn 11. nóvember klukkan 20.00-22.00 verður Einar Einarsson, sjúkraþjálfari með námskeið í íþróttameiðslum á hné og ökkla.  Námskeiðið er sérstaklega ætlað fyrir fagfólk í íþróttum og heilsurækt en nýtist einnig vel íþróttamönnum sem vilja vera vakandi yfir eigin ástandi.

Nánar um námskeiðið:

Miklar kröfur eru gerðar til íþróttafólks í dag. 

Æfinga og keppnisálag hefur aukist og pressan á toppíþróttamenn að keppa og spila er mikil,  ekki sýst þar sem peningar eru í spilinu.

Þetta aukna álag veldur því að tíðni íþróttameiðsla er að hækka og hætta á endurteknum meiðslum og álagsmeiðslum vex til muna.

 

En hvernig vita þjálfarar eða íþróttamennirnir sjálfir hvort viðkomandi sé tilbúinn til keppni eða ekki?

Í þessum tveggja tíma fyrirlestri mun Einar Einarsson sjúkraþjálfari fjalla um aðferðir til að getuprófa íþróttamenn og meta líkamsástand þeirra.

Sjónum verður beint sérstaklega að ökkla og hné og farið yfir próf og helstu æfingar sem hægt er að nota í ástandsmælingar og mat á hreyfigetu og styrk.

 

Verð á námskeiði: 4.900 krónur

Skráning fyrir 30. október hér: https://www.inna.is/Kennarar/keilir/

Þátttakendur fá sendan greiðsluseðil þegar þeir hafa skráð sig í gegnum meðfylgjandi hlekk. Ef greiðandi er annar en þátttakandi skal þátttakandi greiða seðilinn sjálfur og fá endurgreitt frá þeim sem greiða á námskeiðið (íþróttafélag eða annað). Mikilvægt er að seðillinn sé greiddur fyrir eða á gjalddaga ellegar er litið á sem svo að þátttakandi ætli ekki að mæta á námskeiðið.

Nánar um leiðbeinandann á námskeiðinu:

Einar Einarsson, sjúkraþjálfari

Menntun:                              M.S.c Hreyfivísindi  2006 Aarhus University

MTc  Liðfræði 2000 University of St. Augustin

BSc Sjúkraþjálfun Háskóla islands 1991

Íþróttakennari frá Laugarvatni 1986

Einar hefur kennt sjúkraþjálfun í Árósum og í Háskóla Íslands. Í dag starfar hann sem klínískur sérfræðingur hjá KINE og kennir þjálffræði við ÍAK einkaþjálfun.

Ef einhverjar spurningar koma upp þá endilega hafið samband við mig.  Upplýsingar hér að neðan

bestu kveðjur,

Sævar Ingi Borgarsson

verkefnastjóri Heilsuskóla Keilis

saevar@keilir.net

862-6911

Skrifað 8.10.2009 kl. 16:39 af Garðar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Vafraðu um

HSH

Nafn:

Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu

Farsími:

865-0294

Afmælisdagur:

24 september 1922

Heimilisfang:

Sólvellir 3. 350 Grundarfirði

Heimasími:

436-1635

Önnur vefsíða:

umfi.is

Kennitala:

620169-5289

Bankanúmer:

0191-15-370322

Tenglar

Flettingar í dag: 160
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 2114
Gestir í gær: 92
Samtals flettingar: 244486
Samtals gestir: 19975
Tölur uppfærðar: 1.8.2010 01:02:15

Eldra efni