Um síðustu helgi tefldu skákmenn hvaðanæfa af landinu í Rimaskóla í Grafarvogi. Alls tefldu 352 skákmenn á öllum aldri í 4 deilum. Í fyrsta skipti tefldi sveit eingöngu skipuð konum. Deildakeppnin er langfjölmennasta mót sem haldið er hérlendis. Taflfélag Ólafsvíkur og síðar Snæfellsbæjar hafa tekið þátt í þessu móti mörg undanfarin ár. Árangur hefur yfirleitt verið allgóður. Að þessu sinni var Sigurður Scheving liðstjóri. Meðal skákmanna sem tefldu voru Hrafn Arnarson, Rafn Guðlaugsson og Hermann Hjartarson. |