Búið
er að opna umsóknarvef Ferðasjóðs íþróttafélaga vegna keppnisferða á
mót á yfirstandandi ári, þ.e. 2009. Hægt er að skrá inn allar ferðir
sem þegar hafa verið farnar og halda umsókninni opinni til
áframhaldandi skráningar út árið. Til að komast inn á umsóknarsvæðið þarf að fara á heimasíðu ÍSÍ og smella á kassann sem merktur er Ferðasjóður til hægri á forsíðu ÍSÍ. Öll
íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sótt um styrk úr
sjóðnum vegna ferða á mót sem fyrirfram hafa verið skilgreind sem
styrkhæf mót. Leiðbeiningar og svör við algengum spurningum varðandi
sjóðinn er að finna á umsóknarvefnum, eftir að smellt hefur verið á
"Sækja um ferðastyrk". Ferðasjóðnum var úthlutað 60 milljónum vegna ársins 2009. Tengiliður vegna mála er varða Ferðasjóð íþróttafélaga er Halla Kjartansdóttir á skrifstofu ÍSÍ, sími 514 4000/netfang halla@isi.is .