|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
04.10.2009 18:51Karfa kvennaTveir æfingaleikir við Hauka hjá mfl kvenna
Leikurinn fyrri fór fram á föstudag 2. okt, þegar að gestirnir sigruðu 60-76
eftir að staðan í hálfleik hafði verið 24-32.Síðari leikur Snæfells og Hauka fór fram laugard. 3. okt kl 14 og sigruðu Haukastúlkur á
ný, en nú 66-73. Fyrsti leikhluti var í raun og veru nákvæmlega einsog í fyrri
leiknum en Haukar leiddu 10-22. Snæfellsstelpurnar náðu ekki að hemja skyttur
Hauka en fjórar þriggjastiga körfur skilaði þeim góðri forystu. Snæfellsstúlkur
voru ekki nægilega grimmar í aðgerðum sínum en Kristen Green skoraði 7 stig í
fyrri hálfleik en systurnar Berglind og Gunnhildur skoruðu 7 og 5 stig í fyrri.
Sara Sædal fyrirliði gat ekki leikið nema fjórar mínútur vegna meiðsla og munar
um kraftinn frá dömunni. Í hálfleik leiddu Haukastúlkur 25-41.
Í síðari hálfleik hófu Snæfellsstelpur með Kristen í góðum gír, þær
minnkuðu muninn niður í 7 stig á meðan að Haukastúlkur skoruðu einungis þriggja
stiga körfur. Heather Ezell hinn magnaði erlendi leikmaður Haukastúlkna var
áberandi í leikhlutanum og skoraði níu stig á lokakafla leikhlutans og Hauka
leiddu 47-57. Snæfellsstúlkur náðu ekki að koma muninum niður fyrir níu stig
fyrr en í lokin og annar sigur Hauka staðreynd. Baráttan og eljusemi var til
staðar og gerðu stelpurnar betur í þessum leik en í fyrri leik liðanna.
Lokatölur voru 66-73.
Núna framundan eru svo æfingar fram að fyrsta leik hjá stúlkunumen hann er 14. október í
Valsheimilinu (Vodafonehöllinni) að Hlíðarenda.
Skrifað af Garðar |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 527 Gestir í dag: 91 Flettingar í gær: 632 Gestir í gær: 101 Samtals flettingar: 825810 Samtals gestir: 85935 Tölur uppfærðar: 5.2.2012 19:45:23 |