Sem forystuafl íslenskrar íþróttahreyfingar kemur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands að samstarfi um forvarnardag Forseta Íslands fjórða árið í röð. Meðal hinna þrenna sígildu skilaboða forvarnardagsins til æsku landsins og foreldra þeirra er mikilvægi þess að iðka reglulega íþróttir innan skipulegrar íþróttastarfsemi. Rannsóknir hafa með skýrum hætti sýnt fram á samhengi þess við minni líkur á áfengis- og fíkniefnaneyslu ungmenna.
Þátttaka í íþróttastarfi er sannarlega engin ávísun á fullkominn einstakling sem er þar með laus við alla ytri áhættu félagslegra vandamála. En þau gildi sem íþróttahreyfingin stendur fyrir minnka líkurnar. Þau gildi - að viðbættum verðmætum í formi hollrar hreyfingar og uppbyggilegs félagsskapar - hafa líklega sjaldan eða aldrei verið almennt mikilvægari okkar samfélagi. Íslenskt samfélag hagnast á eflingu skipulegrar íþróttastarfsemi og sjalfboðaliðastarfs, og að börn og ungmenni taki þar virkan þátt.
Ýmsir hafa talað um siðrof í íslensku samfélagi samhliða efnahagshruni. Það er mikilvægt að halda á lofti gildum heiðarleika og gagnsærra leikreglna - gildum sem hafa borið uppi starfsemi og keppni íþróttahreyfingarinnar í heila öld. Íþróttahreyfingin er meðvituð um að stöðug umræða og þróun þarf að eiga sér stað varðandi siðareglur, heiðarleika og jafnræði keppenda. Í því felst uppbyggileg forvörn fyrir börn og ungmenni.
Þrátt fyrir að þrengst hafi í búi hjá mörgum íþróttafélögum á undanförnum mánuðum vegna efnahagsástands þá hefur undirritaður hvergi heyrt annað en að dugmiklir stjórnendur íþróttafélaga hafi af fremsta megni reynt að halda dyrum starfsemi sinnar opnum fyrir alla þegna samfélagsins. Í tilefni forvarnardags Forseta Íslands vil ég því hvetja foreldra til að kynna sér hvað íþróttafélög í þeirra hverfi eða sveitarfélagi hafa upp á að bjóða fyrir þeirra börn. Það kynni í senn að vera upphaf að glæstum íþróttaferli samhliða vináttu og góðu skjóli fyrir barnið í faðmi íþróttahreyfingarinnar.
Enn betra er auðvitað að foreldrar og börn þeirra leggist sameiginlega á árarnar með virkri þátttöku í sjálfboðaliðastarfsemi jafnt sem íþróttastarfi félaganna. Með því má segja að íþróttarhreyfingin komi að öllum skilaboðum forvarnardagsins.
Ég hvet foreldra og börn til að kynna sér sígild og einföld skilaboð forvarnardags Forseta Íslands.
Ólafur E. Rafnsson,
Forseti ÍSÍ.