Íþrótta-
og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir alþjóðlegum göngu- og
stafgöngudegi í fimmta sinn laugardaginn 3. október. Gengið verður frá
Reykjavík, Ísafirði, Bolungarvík, Varmahlíð, Egilsstöðum, Eskifirði og
Reykjanesi. Almenningur er hvattur til að mæta og taka þátt í þessum
degi þar sem stafgönguleiðbeinendur ÍSÍ taka á móti þátttakendum og
leiðbeina um rétta notkun stafa. Allir velkomnir og þátttaka er
ókeypis. Með því að smella hér færð þú nánari upplýsingar um göngustaði.