25.09.2009 15:01
Forvarnadagurinn 30. september
Forvarnardagur
2009 verður haldinn í öllum grunnskólum landsins miðvikudaginn 30.
september næstkomandi. Dagurinn er helgaður nokkrum heillaráðum sem
geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum, ráðum sem eiga erindi
við allar fjölskyldur í landinu.
Forvarnardagurinn er haldin að frumkvæði forseta Íslands
í samvinnu við Ungmennafélag Íslands,Samband íslenskra sveitarfélaga,
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands,Bandalag íslenskra skáta,
Reykjavíkurborg, Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Verkefnið er
stutt af lyfjafyrirtækinu Actavis.