|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
23.09.2009 21:15Snæfell lagði KRSnæfell vann KR í æfingarleik
![]() KR-ingar hófu leikinn með að leiða 9-4 en Hólmarar náðu undirtökunum í leiknum og leiddu 15-22 eftir fyrsta leikhluta. Nonni Mæju og Hlynur Bærings skoruðu grimmt og liðið í heild var að berjast sem heild. Snæfell náðu mest 17 stiga forystu í fyrri hálfleik en staðan í hálfleik var 34-47. Brynjar Þór var að leika vel fyrir þá röndóttu og kemur strákurinn vel undan sumri. Snæfell sem voru að fá gott framlag frá sínum mönnum bættu við forystuna í þriðja leikhluta en mikið var um pústra manna á milli og vel tekist á og áttu dómarar leiksins Davíð Hreiðarsson og Georgia Olga Kristiansen ekki auðvelt verkefni fyrir höndum. Mestur varð munurinn á liðunum 22 stig og leiddu Snæfell 53-75 eftir þrjá leikhluta. Í fjórða leikhluta fengu allir leikmenn Snæfell tækifæri og voru lokatölur 76-87 Snæfell í vil.
Það er að komast mynd á Snæfellsliðið en þeir voru greinilega komnir lengra með sín mál miðað við KR-inga sem voru að leika sinn fyrsta leik á undirbúningstímabilinu. Margt á þó eftir að slípast saman hjá liðinu og munum leikmenn og þjálfari vinna hart í því að verða betri með degi hverjum en KR hefur rétt verið að ná í 10 manns á æfingar og erfitt að skera úr um heildargetu liðsins.
Næsta verkefni er átta liða úrslit í Powerade-bikarnum í fjárhúsinu sunnudaginn 27. september klukkan 19:15 þegar að Stjörnumenn mæta í heimsókn en þeir sigruðu Hamarsmenn 103-83 og virka ferskir í upphafi móts. Það þarf ekki að nefna það að Justin Shouse leikur með Stjörnumönnum og bjóðum við hann velkominn í Hólminn á sunnudag.
Stigaskor leikmanna Snæfells: Jón Ólafur Jónsson 27, Hlynur Elías Bæringsson 21, Sigurður Ágúst Þorvaldsson 19, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 10, Sveinn Arnar Davíðsson og Emil Þór Jóhannsson 4 og Kristján Pétur Andrésson 2. Allir þrettán leikmenn liðsins sem mættir voru í DHL-Höllina komu við sögu í leiknum.
Stigaskor leikmanna KR: Tommy Johnson 21, Brynjar Þór Björnsson 16, Finnur Atli Magnússon 9, Ólafur Már Ægisson 8, Fannar Ólafsson 7, Darri Hilmarsson 6, Jón Orri Kristjánsson 4, Steinar Kaldal 3 og Skarphéðinn Freyr Ingason 2. Victor Fiour náði ekki að komast á blað. IÞS Skrifað af Garðar |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 481 Gestir í dag: 96 Flettingar í gær: 586 Gestir í gær: 147 Samtals flettingar: 826980 Samtals gestir: 86207 Tölur uppfærðar: 7.2.2012 20:51:54 |