|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
14.09.2009 11:44Fræðslukvöld ÍSÍ
Fræðslukvöld ÍSÍ Kennt verður á milli kl. 17.00 og 21.00. Fræðslukvöld ÍSÍ fara nú aftur af stað eftir sumarfrí og hefjast fimmtudaginn 17. september nk. á Akureyri og 24. september í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í Reykjavík. Kennt verður í 5 kennslustunda lotum og er þessi fræðsla jafnframt liður í þjálfaramenntun ÍSÍ á 2. stigi almenns hluta. Fræðslukvöldin hefjast kl. 17.00 á báðum stöðum og lýkur kl. 21.00. Fræðslukvöldin eru öllum opin, 16 ára og eldri, þ.m.t. þeim sem ekki ætla sér í þjálfaranám. Fræðslan getur t.d. í sumum tilfellum hentað iðkendum íþrótta og aðilum sem þurfa að sækja sér endurmenntun. Skráning er á namskeid@isi.is og þarf henni að vera lokið tveimur sólarhringum fyrir hvert námskeið. Námskeiðsgjald er kr. 3.500.- og greiðist fyrir upphaf námskeiðs. Allar frekari upplýsingar um fræðslukvöld ÍSÍ veitir sviðsstjóri fræðslusviðs í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is
Skipulag fræðslukvölda á haustönn 2009 (með fyrirvara um ófyrirsjáanlegar breytingar):
Fim. 17. sept. á Akureyri. Næring íþróttafólks/lyf og íþróttir
Fim. 24. sept. í Reykjavík. Skipulag þjálfunar (fyrri hluti)
Fim. 8. okt. á Akureyri. Íþróttameiðsl.
Fim. 15. okt. í Reykjavík. Skipulag þjálfunar (seinni hluti)
Fim. 22. okt. á Akureyri. Skipulag þjálfunar (fyrri hluti)
Fim. 29. okt. í Reykjavík. Starfsemi líkamans
Fim. 5. nóv. á Akureyri. Skipulag þjálfunar (seinni hluti)
Fim. 12. nóv. í Reykjavík. Íþróttasálfræði
Fim. 19. nóv. á Akureyri. Siðfræði/forvarnir.
Fim. 26. nóv. í Reykjavík. Siðfræði/forvarnir
Fyrirlesarar/kennarar á framangreindum fræðslukvöldum verða m.a. eftirtaldir:
Rúnar Andrason Sálfræðingur Hafrún Kristjánsdóttir Sálfræðingur Fríða Rún Þórðardóttir Næringarfræðingur Örvar Ólafsson Verkefnisstjóri hjá ÍSÍ Stefán Ólafsson Sjúkraþjálfari Viðar Sigurjónsson Sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ
Skrifað af Garðar |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 454 Gestir í dag: 90 Flettingar í gær: 586 Gestir í gær: 147 Samtals flettingar: 826953 Samtals gestir: 86201 Tölur uppfærðar: 7.2.2012 19:24:45 |