|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
14.09.2009 11:34Haustmót ÆgisHAUSTMÓT ÆGIS Verður haldið í Laugardalslaug helgina 9. - 11. Október 2009 Keppt verður í 25m laug í fimm hlutum á þremur dögum. Á föstudegi verður keppt í opnum flokki í 50m greinum og í 800m og 1500m skriðsundi. Á laugardegi og sunnudegi verður keppt í 12 ára og yngri fyrir hádegi og 13 ára og eldri eftir hádegi. Það eru engin tímalágmörk á mótið, takmarkaður verður fjöldi riðla við þrjá í greinum sem eru 400 metra og lengri. Við áskiljum okkur þó einnig rétt að takmarka fjölda riðla frekar ef þess gerist þörf. ATH: Mótið er sett upp þannig að sundmenn í sveinum og meyjum sem eru mjög efnilegir geta keppt í drengja/telpna flokki. Verðlaun eru þó aðeins veitt fyrir drengja/telpna flokk kjósi sundmaður að synda eftir hádegi. (Takmarkað verður í riðla í 50m greinum á föstudag og eru þær ekki ætlaðar fyrir byrjendur.) Aldursflokkar Hnokkar / Hnátur Sveinar / Meyjar Drengir / Telpur Opinn flokkur 10 ára og yngri 12 ára og yngri 14 ára og yngri 15 og eldri Verðlaun: Allir í Hnokka- og Hnátu-flokki fá viðurkenningu fyrir þátttöku. Veitt verða verðlaun fyrir 1.,2. og 3.sæti í Hnátu og Hnokka-flokki (10 ára og yngri) Sveina og Meyja-flokki (12 ára og yngri) Telpna og Drengja-flokki (14 ára og yngri). Í Opnum flokki 15 ára og eldri verða veitt verðlaun fyrir fimm stigahæstu eintaklingana í karla og kvennaflokki. Valið er út frá samanlögðum árangri í tveimur greinum samkvæmt stigatöflu FINA. Auk þess verða gefin sérstök verðlaun fyrir sigursveit í boðsundum Skráningar: Skráningagjaldið er kr. 350 fyrir einstaklingsgrein og kr. 500 fyrir boðsund. Skráningarfresturinn rennur út sunnudaginn 4. október kl. 24.00. Skráningar sendist á motanefnd@aegir.is Þriðjudaginn 6. október verður keppendalistann birtur á heimasíðunni okkar http://www.aegir.is Þjálfarar eru beðnir um að fara vel yfir sínar skráningar og senda inn leiðréttingar eða úrskráningar ef einhverjar eru, eigi síðar en fimmtudaginn 9. október kl. 20.00. Nánari upplýsingar veita: Gústaf A Hjaltason gustaf@aegir.is Ragnhildur Guðjónsdóttir raggahelgi@simnet.is / motanefnd@aegir.is Sundkveðja, Sundfélagið Ægir Skrifað af Garðar |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 527 Gestir í dag: 91 Flettingar í gær: 632 Gestir í gær: 101 Samtals flettingar: 825810 Samtals gestir: 85935 Tölur uppfærðar: 5.2.2012 19:45:23 |