|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
09.09.2009 21:33Stjórnarfundur 8 sept 2009
Stjórnarfundur HSH haldinn í Kaffistofu Sjávariðjunnar Rifi Þriðjudaginn 8 sept 2009 kl. 20.00 Garðar Svansson, Hermundur Pálsson, Hjörleifur K. Hjörleifsson,Tómas Kristjánsson, Alexander Kristinsson, gestir Helga Guðjónsdóttir Form UMFÍ, Sæmundur Runólfsson, framkvst. UMFÍ Dagskrá fundarins
1 Fundur settur. Hermundur setti fund og bauð fundarmenn og gesti velkomna, 2 ULM 2010 Grundarfirði. Garðar greindi frá vinnu við að leita eftir stuðningi við ULM 2010. Rætt var við áhrifafólk í íþrótthreyfingunni innan HSH. Sæmundur greindi frá samskiptum við KKÍ vegna undirbúning við framkvæmd körfubolta á ULM. Einnig nefndi Sæmundur aðbúnað og aðstöðusköpun ætti að vera verkefni sem vel mögulegt væri að leysa. Sæmundur lagði fram þá hugmynd að stjórn HSH kæmi inn í ULM nefndinna til styrkja starf nefndarinnar. Sæmundur lýsti starfi nefndarinnar og hvaða verkefni væru brýnust að leysa á næsta misseri. Rætt var um stuðning og fjármögnu og kom fram að gerður hefur verið styrktarsamningur til 3 ára við nokkur fyrirtæki. Umræður voru um stærð ULM, hugmyndir um fjölda keppenda og umfang móta, sem og aldur þáttakanda. Stjórn HSH samþykktir að taka sæti í undirbúningsnefnd ULM 2010. Tillaga um að form ULM 2010 boði til fundar fimmtudaginn 17 sept kl. 18.00 3 Þing UMFÍ Helga og Sæmundur greindi frá starfi þingsins. Þingið hefst með skýrslu stjórnar, framlagðar tilllögur og umræður um starf UMFÍ Sæmundur spurði hvort HSH væri með einhverja sem væru mögulegir til framboðs til stjórnar. Helga og Sæmundur lögðu að stjórnarmönnum að mæta á þing UMFÍ. Helga og Sæmundur viku af fundi kl. 21.30. Rætt var um mögulegt framboð til stjórnar UMFÍ 4 Yfirlit framkvæmdarstjóra. Skrifstofa í Samkomuhúsi Grundarfjarðar hefur verið standsett. Búið er að setja upp síma HSH og tengja símsvara. Eygló skilar af sér á næsta fimmtudag og er þessa daga að ganga frá reikningum síðasta mánaðar. 5 Bókhaldskerfi ÍSÍ, netbókhald.is Garðar lagði til að HSH geri samning við netbókhald.is. Samþykkt 6 Íþróttamaður HSH. Tilnefningar fyrir útnefningu íþróttamann HSH þarf að berast til stjórnar ekki síðar en 10 nóvember. Áminna þarf að sambandsaðila um að skila greinagóðri skýrslu um árangur og ástund íþróttamanna. Í fundarboði formannafundur HSH 2009 skulu útnefningar fylgja með til kynningar fyrir kosningar. Samþykkt. 7 Þing HSH 2010 Tillaga er um að þing HSH 2010 verði haldið í síðustu viku febrúar 2010 í Stykkishólmi. 8 Heimasíða HSH Garðar greindi frá vinnu við uppfærslu heimasíðu HSH og er stefnt á að vista hana hjá 123.is. 9 Íþróttasjóður ríkissins. Helga greindi frá því að umsóknarfrestur er til 1.okt 2009. Hvatti hún HSH og aðildarfélög til að sækja um í sjóðinn. 10 Starfsmaður HSH. Garðar greindi frá helstu punktum í starfi HSH. Jafnframt skýrt frá drögum að samning við starfsmann. Nokkrar umræður voru um verkefni og starf HSH.
11 Næsti fundur. Verður haldinn 9 okt 2009 kl. 15.00
Fundi slitið kl 22.17 Garðar Svansson Fundarritari. Skrifað af Garðar |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 527 Gestir í dag: 104 Flettingar í gær: 586 Gestir í gær: 147 Samtals flettingar: 827026 Samtals gestir: 86215 Tölur uppfærðar: 7.2.2012 22:30:54 |