
|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
||||||||||||||||
Færslur: 2010 Ágúst29.08.2010 16:29Grunnskólaganga UMFÍGrunnskólaganga UMFÍ Ákveðið hefur verið að ljúka almenningsíþróttaverkefni sumarsins á vegum UMFÍ "Hættu að hanga! Komdu að hjóla, synda og ganga" á "Grunnskólagöngu UMFÍ". Markmið göngudagsins er að vekja grunnskólabörn til umhugsunar um þær gönguleiðir sem eru í nágrenni síns skóla sem og í sveitarfélaginu. Hægt er að nálgast upplýsingar um gönguleiðir í sveitarfélaginu á vefnum ganga.is undir reitnum ,,göngukort". Fyrirhugað er að nemendur hafi áður en að göngudeginum kemur, unnið verkefni sem felst í því að nemendur vinni í hópum að því að finna nýjar gönguleiðir, sem ekki er að finna á vefnum ganga.is, í nágrenni skólans eða í viðkomandi sveitarfélagi. Nemendurnir taka myndir af leiðinni, tímamæla hana og gera stutta lýsingu á henni. Þegar hópurinn hefur lokið verkefninu senda þeir upplýsingarnar ásamt mynd af hópnum sem vann að verkefninu á netfangið sigurdur@umfi.is. UMFÍ mun senda skólunum skilti sem setja á niður við upphaf hverrar gönguleiðar og þar að auki fær hver hópur viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna. Allar þær gönguleiðir sem nemendur skila inn til UMFÍ verða settar inn á vefinn ganga.is undir nafni viðkomandi skóla. Dagana 8. - 15. september geta skólarnir valið einn dag til að ganga þá gönguleið sem þeir gerðu grein fyrir.
Verkefnið í hnotskurn Verkefni fyrir grunnskólabörn:
Ávinningur af þátttöku í verkefninu:
29.08.2010 15:52Snæfell spilar æfingarleik við KR![]() Í dag koma KR-stúlkur til með að spila æfingaleik við okkar stúlkur í mfl kvk í körfu. Óvænt bar þetta upp og með litlum fyrirvara. Leikurinn er kl 13:30 í íþrh.Stykkish. sbh
29.08.2010 15:49Baráttuleikur á Ólafsvikurvelli1-0 sigur á Hamri í baráttuleik28. ágúst 2010 klukkan 17:22
Það var blíðskapar verður í Ólafsvík þegar heimamenn í Víking tóku á
móti Hamarsmönnum frá Hveragerði í dag. Ólafsvíkurvöllur skartaði sínu
fegursta og voru aðstæður til knattspyrnuiðkunnar eins og best verður á
kosið, sól og örlítill andvari frá Norð-Austri. Leikurinn
fór fjörlega af stað og strax á 3. mínútu leiksins fengu heimamenn
aukaspyrnu þegar brotið var á Artjoms Goncars rétt fyrir utan vítateig.
Kristján Óli Sigurðsson tók spyrnuna og fyrna fast skot hans fór rétt
yfir þverslánna og Björn í marki Hamars.Þrátt fyrir góða byrjun beggja liða létu marktækifærin á sér standa en á 29. mínútu var Helgi Óttarr Hafsteinsson nálægt því að nýta sér mistök Björns í marki Hamars sem kastaði boltanum beint á Þorstein Már Ragnarsson í framlínu Víkings. Þorsteinn lagði boltann út á Helga en Björn náði að verja skot Helga og bjargaði því sem bjargað var. Eins og fyrr segir var lítið um opin marktækifæri og einkenndust tilraunir beggja liða af skotum fyrir utan teig sem rötuðu oftar en ekki á ramman. Hættulegustu færin komu eftir föst leikatriði en á 37. Mínútu varði Björn í marki Hamars stórglæsilega í tvígang eftir hornspyrnu heimamanna. Fyrst skot Kristjáns Óla af stuttu færi og svo bakfallspyrnu Þorsteins en að lokum tókst varnarmönnum gestanna að koma boltanum út úr teignum. Fátt markvert gerðist það sem eftir var fyrri hálfleiks og var staðan því 0-0 þegar Ingvar Örn Gíslason dómari flautaði til leikhlés. Strax í upphafi seinni hálfleiks vildu heimamenn fá víti þegar þeir töldu að brotið hefði verið á Þorsteini inn í vítateig. Ingvar dómari var ekki á sama máli og fengu heimamenn hornspyrnu sem þeim tókst ekki að nýta. Víkingar settu mikla pressu á Hamarsmenn í kjölfarið en þrátt fyrir ágætar tilraunir tókst þeim ekki að koma knettinum í netið. Víkingar fengu hættulegri færi í síðari hálfleik og eitt af þeim fékk ALeksandrs Cekulajevs á 62. mínútu. Þorsteinn Már sendi þá góða sendingu inn fyrir vörn Hamars þar sem Aleks var mættur en skaut knettinum yfir af stuttu færi. Á 78. Mínútu átti Einar í marki Víkings svo glæsilega stungusendingu á Edin Beslija sem fór illa með ákjósanlegt færi og skaut knettinum yfir markið. Tveimur mínútum síðar dró til tíðinda þegar fyrirgjöf Artjoms Goncars endaði í marki Hamars en Helgi Guðnason varð fyrir því óláni að breyta stefnu knattarins með fyrrgreindum afleiðingum. Víkingar þar með komnir með forystu og stutt eftir af leiknum. Víkingar fengu færi til að bæta við en Björn í marki Hamars var vel á verði auk þess sem sóknarmenn Víkings voru langt frá sínu besta í dag. Leiknum lauk engu að síður með sigri heimamanna sem tróna á toppi deildarinnar með 49 stig.
26.08.2010 18:42Næsti leikur hjá víking á laugardag26.08.2010 18:34Kvennalið Snæfells á karfan.is
Púlsinn hjá liðunum í IEX kvenna: SnæfellTöluverðar
breytingar hafa orðið á kvennaliði Snæfells fyrir komandi leiktíð og
nokkuð skarð verið höggvið í leikmannahóp liðsins. Farnar frá félaginu
eru Gunnhildur Gunnarsdóttir og Unnur Lára Ásgeirsdóttir í Hauka. Hanna
Rún Smáradóttir er farin í nám í Reykjavík og ekki með vegna anna í
vinnu og skóla er Sara Sædal Andrésdóttir fyrirliði á síðasta ári.
Karfan.is ræddi við Inga Þór Steinþórsson um komandi tímabil og segir
hann spennandi að vinna áfram með þetta unga lið Hólmara. ,,Við höfum fengið Ingu
Muciniece frá Lettlandi til liðs við okkur en hún lék síðast í
Bandaríkjunum með NC State og þá er væntanlegur til okkar amerískur
leikmaður. Annars er ég með ungt lið og verður mjög spennandi að vinna
með þessum áhugasömu stelpum áfram næsta vetur með Baldri Þorleifs,"
sagði Ingi Þór og kveðst stoltur af árangri liðsins á síðustu leiktíð. ,,Liðið
náði í fyrsta skipti í sögu klúbbsins inn í úrslitakeppnina en við erum
afar raunhæf og ætlum að njóta þess að vera til og stunda körfu af
krafti, þannig náum við árangri og við ætlum okkur að standa stolt eftir
tímabilið," sagði Ingi en hvernig metur hann önnur lið í deildinni? ,,Öll
liðin í deildinni eru að breytast og er spurning hvaða lið hefja
tímabilið með kana. Ég tel að deildin verði skemmtileg og fróðlegt að
fylgjast með hvaða leikmenn eiga eftir að blómstra í vetur. Toppliðin
verða áfram öflug og alveg á tæru að allir klúbbar ætla að vera með í
baráttunni á sinn hátt sem er frábært fyrir kvennaboltann. Það eina sem
ég veit um veturinn er að Snæfelsstúlkur ætla að mæta stemmdar til leiks
og njóta þess að gera betur í dag en í gær." Ljósmynd/ Eyþór Benediktsson: Ingi Þór náði mögnuðum árangri með bæði Snæfellsliðin á sínu fyrsta ári í Hólminum 26.08.2010 18:29UMFG auglýsir eftir blakþjálfara
23.08.2010 17:084 fl kvenna í 2 sætiTil hamingju með árangurinn Þjálfarinn er eftir þessa helgi komin á "ofnæmiskúr" - hann hélt á tímabili að hópurinn um helgina hefði misskilið "keppnisgrein mótsins" og haldið að um keppni í ilmvatnsnotkun væri að ræða En að næsta verkefni Leikur í Reykjavík á þriðjudag þá veður síðasti leikur sumarsins og verður hann spilaður við Fjölni. Þær sem eiga að mæta eru: Azra Irma Rebekka Gestheiður Lovísa Rakel María Sigrún Thelma Guðlaug Iris Aldís Viktoría Elín Gréta Hrefna Agnes Staðfestið mætingu fyrir mánudagskvöl og að sjálfsöguð vantar bílstjóra í þessa síðustu og skemmtilegu ferð Þessi törn er að verða búin og ég verð bara að segja að ég er mjög stoltur af ykkur þið eruð frábær hópur! Af bloggsíðu 4 fl kvenna 23.08.2010 17:076 fl drengja í 2 sæti2.sæti á Pollamóti KSÍ. Til hamingju!Þá er úrslitakeppni B liða Pollamóts KSÍ lokið og okkar strákar höfnuðu í 2.sæti. Til hamingju með þetta strákar! Það voru aðeins 8 strákar sem gátu tekið þátt um helgina og stóðu þeir sig frábærlega vel! Þeir stóðu vel í andstæðingunum og voru ekki langt frá því að vinna en úrslitaleikurinn var á milli Selfoss og okkar stráka. Leikurinn endaði 4-2. Einhver vandræði eru við að koma stærri mynd inn - þið notið bara stækkunnargler 23.08.2010 17:046 fl kvenna hefur lokið keppni í sumarÞá er Hnátumótið búið og við enduðum í 7.sæti. Að vera númer 7 af 25 liðum er nú bara góður árangur verð ég að segja. Til hamingju með árangurinn Þið stóðuð ykkur vel! Næst á dagskrá hjá ykkur er að vera duglegar að mæta á æfingar, minnka nammi og borða hollan og góðan mat Takk fyrir samstafið Tekið af bloggsíðu 6 fl Vonandi verða fleirri fréttir á næsta tímabili frá þjálfurum og umsjónarfólki. 23.08.2010 16:12UMFG hefur lokið keppni í sumarTímabilinu lokiðÞá er Grundarfjörður búinn að spila alla sína leiki á Íslandsmóti KSÍ þetta sumarið... Augnablik - Grundarfjörður 4-3 Byrjunarlið Grundarfjarðar var þannig skipað: Viktor var í marki Haddi í hægri bak Ingi B í vinstri bak Aron og Jón Frímann miðverðir Heimir hægri kantur Birkir vinstri kantur Ragnar og Hrannar á miðju Himmi fyrir framan Almar frammi Bekkur: Tommi Kári Viðars Sigurbjörn B Árni Þór Við byrjuðum leikinn ágætlega og bæði lið vorur að sækja. Svo um á 35 mín gerðist eitthvað hjá okkur. Allt hrundi og við fengum á okkur 3 mörk á 4 mínútum. Ragnar Smári náði að laga stöðuna með fyrsta marki sínu í sumar í 3-1 og þannig var staðan í hálfleik. Í síðari hálfleik kemur Kári Viðars inn fyrir Birki og við byrjum að sækja og setja á þá. Á 70 mín uppskerum við því að Almar nær skoti á markið með viðkomu í varnarmanni og staðan orðin 3-2. Við þetta tvíeflumst við og aðeins 2 mínútum síðar á Heimir frábæra aukaspyrnu beint á kollinn á Jóni Frímanni sem stangar boltann í stöngina og inn og staðan orðin 3-3. Þvílík endurkoma. Eftir þetta liggjum við á þeim og vorum töluvert betri og með hættulegri færi. Hrannar var mjög óheppinn þegar að gott skot hans stefndi upp í markvinkilinn en markvörður Augnabliks náði að verja á einhvern ótrúlegan hátt. Svo átti Jón Frímann hörku skalla sem því miður fyrir okkur fór beint á markvörðinn. Svo gerist það á 90 mín eftir að við erum búnir að sækja og sækja að það kemur langur bolti fram sem að vörnin missir yfirsig, Viktor grípur boltann en sóknarmaður Augnabliks nær að slæma öxlinni í boltann eftir að Viktor er með báðar hendur á honum, Viktor missir boltann og eftirleikurinn er auðveldur fyrir sóknamann Augnabliks og staðan því 4-3. Við tökum miðju og dómarinn flautar af. Gríðarlega svekkjandi og tel ég að við höfum átt meira skilið úr þessum leik. Niðurstaða sumarsins eru 5 stig. Einn sigur og tvö jafntefli. Í mjög mörgum leikjum vorum við að fá á okkur mörk á síðustu mínútunum og kenni ég formleysi um. Stefnan er að halda áfram næsta sumar en þá verðum við líka að læra af þessu tímabili og koma töluvert betur undirbúnir undir það. Annars þökkum við kærlega fyrir sumarið, stuðninginn og stemminguna í brekkunni á leikjunum í sumar. Takk fyrir okkur. 23.08.2010 09:42Hestaþing Snæfellings, úrslitÚrslit af hestaþingi Snæfellings
Hér eru úrslit frá hestaþingi Snæfellings sem
fór fram í Stykkishólmi á laugardag. Glæsilegasti hestur mótsins
var Hrókur frá Flugumýri II og hryssa mótsins Glóð frá Kýrholti.
Siguroddur Pétursson var valinn knapi mótsins og dóttir hans Guðný
Margrét efnilegasti knapinn. A-flokkur 1 Hrókur frá Flugumýri II / Siguroddur Pétursson 8,56 2 Brynjar frá Stykkishólmi / Lárus Ástmar Hannesson 8,27 3 Sara frá Sauðárkróki / Inga Kristín Campos 8,24 4 Sýn frá Ólafsvík / Lárus Ástmar Hannesson 8,14 5 Smári frá Stakkhamri / Lárus Ástmar Hannesson 7,69 B-flokkur 1 Glóð frá Kýrholti / Siguroddur Pétursson 8,49 2 Stapi frá Feti / Kolbrún Grétarsdóttir 8,40 3 Linda frá Feti / Hannes Sigurjónsson 8,40 4 Píla frá Eilífsdal / Lárus Ástmar Hannesson 8,34 5 Lyfting frá Kjarnholtum I / Siguroddur Pétursson/(Guðný Margrét Siguroddsd.) 8,32 Tölt 1 Siguroddur Pétursson / Glóð frá Kýrholti 7,39 2 Lárus Ástmar Hannesson / Tandri frá Hólum 6,50 3-4 Gunnar Björn Gíslason / Pirra frá Syðstu-Görðum 6,33 3-4 Gunnar Sturluson / Dímon frá Margrétarhofi 6,33 5 Hannes Sigurjónsson / Skúmur frá Kvíarhóli 6,28 Barnaflokkur 1 Guðný Margrét Siguroddsdóttir / Mosi frá Kílhrauni 8,58 2 Borghildur Gunnarsdóttir / Frosti frá Glæsibæ 8,40 3 Fanney O. Gunnarsdóttir / Snót frá Brimilsvöllum 8,12 4 Anna Soffía Lárusdóttir / Geisli frá Bjarnarhöfn 7,97 5 Harpa Lilja Ólafsdóttir / Aspar-Snúður frá Grundarfirði 7,18 Tölt 17 ára og yngri 1 Guðný Margrét Siguroddsdóttir / Mosi frá Kílhrauni 6,56 2 Hrefna Rós Lárusdóttir / Draumur frá Gilsbakka 5,72 3 Borghildur Gunnarsdóttir / Frosti frá Glæsibæ 5,56 Unglingaflokkur 1 Hrefna Rós Lárusdóttir / Draumur frá Gilsbakka 8,22 2 Guðrún Ösp Ólafsdóttir / Knarran frá Knerri 7,04 Ungmennaflokkur 1 Marina Schregelmann / Rán frá Þorkelshóli 2 8,16 22.08.2010 12:51Til hamningu víkingarVíkingar spila í fyrstu deild að ári
21.08.2010 16:49Hörkuleikur hjá UMFGC - riðill
Í C riðli fór fram einn leikur en þar sigruðu Augnabliksmenn lið Grundafjaðar með marki á lokamínútunni. Með sigrinum komust þeir upp fyrir Létti í 5.sæti en Léttismenn leika við KB á morgun. KB getur unnið riðilinn sigri þeir Léttismenn með 3 mörkum eða meira að öðru leiti enda þeir í 2.sæti. Skallagrímur og Ýmir eigast við á morgun í leik um 3.sætið í riðlinum. Augnablik 4 - 3 Grundarfjörður 1-0 Víðir Róbertsson 2-0 Víðir Róbertsson 3-0 Sigurjón Jónsson 3-1 Ragnar Smári Guðmundsson 3-2 Sjálfsmark 3-3 Jón Frímann Eiríksson 4-3 Jón Viðar Guðmundsson 21.08.2010 16:45Víkingur að tryggja sætið í 1 deild?Hvöt - Víkingur Ó. | Bein lýsing (0-1)21. ágúst 2010 klukkan 13:41
![]() Leik lokið á Blönduósi þar sem Víkingar fóru með sigur af hólmi 0-1! Sanngjarn sigur af mínu mati og þeir hérna í vallarhúsinu á Blönduósi eru sammála mér enda höfðingjar heim að sækja. Verð að hæla þeim fyrir gestrisni og góðar móttökur. Víkingar fagna nú úti á velli!!! Nánari lýsing á leiknum á síðu víkings. 20.08.2010 20:50Rástímar á hestafréttir.isFélagsmót Snæfellings 2010 Ráslistar Snæfellings
Hestaþing Snæfellings verður haldið í
Stykkishólmi laugardaginn 21. ágúst nk. og hefst kl. 10. Verður um að
ræða keppni í A- og B-flokki gæðinga og flokki barna, unglinga og
ungmenna. Einnig verður kept í tölti og gæðingaskeiði fullorðinna og
tölti 17 ára og yngri. Skráningar á mótið skulu berast á netfangið hrisdalur@hrisdalur.is í síðasta lagi miðvikudaginn 18. ágúst kl. 24:00. Skráningargjald
er kr. 2000 fyrir hverja skráningu i gæðingakeppninni, gæðingaskeiði
og tölti, en kr. 500 fyrir börn og unglinga. Við skráningu þarf að gefa
upp IS númer hests og GSM síma þess er skráir. Hestar þurfa að vera
grunnskráðir i WorldFeng. Skráningargjald leggist inn á reikning númer 0191-26-000876, kt. 440992-2189, um leið og skráð er. Stjórn Snæfellings.
|
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 541 Gestir í dag: 93 Flettingar í gær: 632 Gestir í gær: 101 Samtals flettingar: 825824 Samtals gestir: 85937 Tölur uppfærðar: 5.2.2012 20:29:10 |
|||||||||||||||