|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Fréttir30.6.2010Áfram Afríka - Boð til aðildarfélagaLjósmyndasýning Páls Stefánssonar í KSÍNú stendur yfir ljósmyndasýning Páls Stefánssonar, Áfram Afríka, á 3. hæð í höfuðstöðvum KSÍ við Laugardalsvöll. Sýningin var áður í aðalstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York og hafði Áhugamannafélagið Afríka 20:20 frumkvæði að samstarfi á milli KSÍ, Páls og bókaútgáfunnar Crymogea um uppsetningu sýningarinnar í húsnæði KSÍ. Myndir á sýningunni er að finna í samnefndri ljósmyndabók. Ljósmyndasýningin er opin almenningi og íþróttafélögum á virkum dögum í sumar, frá klukkan 8 - 16. Líkt og með bók Páls er markmið sýningarinnar að veita innsýn í mikinn áhuga á fótbolta í löndum Afríku og að lífið þar snýst líka um leik og skemmtun. Myndir Páls sýna greinilega hversu ríkur þáttur knattspyrnan er í lífi Afríkumanna og á mörgum myndanna má finna allra hreinasta form grasrótarknattspyrnu. Aðildarfélög KSÍ eru hvött til að koma í heimsókn til KSÍ og skoða sýninguna. Slík heimsókn gæti hentað vel fyrir hópa iðkenda, t.d. úr yngri flokkum eða knattspyrnuskólum félaganna. Ef um hópferð er að ræða mun Afríka 20:20 jafnframt bjóða upp á sérstaka kynningu á Afríku, og verður þá fjallað um sögu álfunnar, menningu og samfélag. Nokkurra daga fyrirvara þarf þó á slíkri heimsókn með kynningu og er aðildarfélögum bent á að hafa samband við Ómar Smárason hjá KSÍ (omar@ksi.is). 30.6.2010Goggi GalvaskiMikið fjör á Gogga Galvaska
Um nýafstaðna helgi var rosalega skemmtilegt að
vera á Varmárvelli í Mosfellsbæ. Þá
var haldið Frjálsíþróttamótið Goggi galvaski fyrir 14 ára og yngri, 228
keppendur voru mættir til leiks og þreyttu þrautir í þrjá daga Sjö Goggamet
voru slegin og eitt Íslandsmet var sett í kringlukasti stelpna.Á
laugardag og sunnudag vakti athygli prufu keyrsla á nýlegu keppnisformi
fyrir 8 ára og yngri svonefndar "Krakka frjálsar" eða Kids Athletics. Skipuleggjanda þótti þetta verkefni ekki
síður spennandi þar sem hugmyndin gengur út á að fá forráðamenn þeira
litlu til að vera hluti af keppninni með þeim. Vill mótsstjóri taka fram
að þetta form gat ekki komið betur út og vill hann þakka innilega fyrir
þá aðstoð sem þau veittu. Erfitt er að skýra út í stuttu máli aðferð þessa,
en það er bara hægt að segja, sjón er sögu ríkari. 30.6.2010Létt hjá Víking á GrýluvelliHelgi Óttarr skoraði síðara mark
Víkings.
- Ívar Örn Guðjónson skrifar frá Grýluvelli
Hamar 0-2
Víkingur Ólafsvík:
0-1 Þorsteinn Már Ragnarsson 0-2 Helgi Óttarr Hafsteinsson Rautt spjald: Sindri Már Sigurþórsson ('34) Hamarsmenn tóku á móti toppliði Víkings Ólafsvíkur á Grýluvelli í kvöld. Margir voru mættir á völlinn og þar á meðal Bjarni Jóhannsson þjálfari Stjörnunar. Leikurinn byrjaði eins og við mátti búast með sterkri pressu Víkinga. Fyrstu 10 mínúturnar voru Víkingar bunir að eiga glás af hálffærum og þar á meðal sláarskot. Hægt væri að gera heila blaðsíðu af öllum færunum en það verður að bíða betri tíma. Það var svo á 11.mín sem fyrsta dauðafærið kom þegar Aleksandrs Cekulajev fékk sendingu fyrir af kantinum og ákvað að skjóta í stað þess að senda boltan lengra og endaði skotið hræðilega framhjá. Leikurinn hægðist þó svo Víkingar hafi ráðið ríkjum áfram. Eftir 28.mín fékk þó Aleks fínt færi, en sem fyrr brást honum bogalistinn. Það var síðan Sindri Sigurþórsson í liði Víkings sem fékk rautt spjald eftir 34.mín eða tvö sanngjörn gul spjöld. En þetta spjald virtist brjóta ísinn fyrir Víkinga því þeir skoruðu einungis 3 mínútum síðar og var þar að verki Þorsteinn Már Ragnarsson sem fékk sendingu frá Edin Beslija, en þó verður að segjast að hann var langt fyrir innan, eða svipað mikið og Tevez gegn Mexico. Fleira er svo ekki frásögu færandi úr fyrri hálfleikinum. Seinni hálfleikur gekk út á að Hamarsmenn léku uppá síðasta þriðjung vallarins þar sem þéttir Víkingar tóku á móti þeim og vantaði alltaf loka hnykkinn á leik Hamarsmanna. Það var svo tíu mínútum fyrir leikslok þegar léleg sending kom úr vörn Hamars, Víkingar nýttu sér það og sóttu hratt upp miðjuna, barst boltinn þaðan og inn fyrir til hægri á Helga Óttar Hafsteinsson sem kláraði færið vel og því úrslitin svo gott sem ráðin. Það gerðist lítið eftir þetta nema gula spjald dómarans fór ekki niður í vasa seinustu fimm mínúturnar, og kórnaði hann þar sinn slæmaleik ásamt sínu tríói. Frétt frá Fótbolta.net. Sjá alla fréttina: http://fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=93541#ixzz0sJoP9dU0 30.6.2010Hrannar í 2 leikja bannHrannar
Már hefur verið úrskurðaður í 2 leikja bann. Á fundi Aga-og úrskurðarnefnd KSÍ 29.6.2010 var Hrannar Már Ásgeirsson - Meistaraflokkur karla - úrskurðaður í 2 leikja bann vegna brottvísunar 25.06.2010. Aga-og úrskurðanefnd KSÍ ![]() Hrannar verður búinn að taka út bannið þann 23 júlí á móti Létti. 30.6.2010Paramót hjá VestarrNæsta paramót verður haldið þegar veðrið verður jafn gott við okkur og vonandi innan skamms. Næstu mótshaldarar voru dregnir út og verða það þau Dóra Henriks og Guðrún Björg sem sjá um næsta mót. Fyrirkomulagið er aðeins breytt, aðeins kostar nú 500 kr per einstakling að spila en í staðinn eru engar veitingar. Vinningar eru hinsvegar enn til staðar og voru þeir í þetta skiptið af stærri gerðinni; rauðvín, hvítvín, pizzur og pulsa og kók! Ekki amalegt það. 30.6.2010Vinnuskóladagur hjá VestarrAð loknum fínum vinnudegi var haldið pulsupartý, grillaðar heil ókjör af pylsum sem runnu vel ofaní hressa krakkana. Að því loknu skunduðu þau flest á æfingarsæðið og vonandi tóku þau þar fyrstu skrefin í íþróttinni. Þessi dagur er hluti af þeim samning sem gerður var við Grundarfjarðarbæ um fríspil unglinga í Grundarfirði. Þakkar stjórn Vestarr krökkunum fyrir daginn sem og henni Bibbu sem stýrði krökkunum af stakri snilld. Hér er svo mynd af hetjunum: 29.6.2010Víkingur mætir Stjörnunni í 8 liða úrslitum
29.6.2010Tap gegn LéttiÞað
gengur lítið upp hjá okkur þessa dagana. Leikurinn gegn Létti var ekki
áfallalaus. Við vorum í tómu tjóni til að byrja með. Lentum 3-0 undir
eftir c.a. 20 mín leik. Svo lendir Tryggvi í slæmum meiðslum og þarf að
fara uppá slysó og verður frá út sumarið. Skömmu eftir það er svo
Hrannar rekinn útaf með beint rautt spjald sem hefði alveg getað verið
gult. Þannig var það að við fengum 1 mark í viðbót á okkur fyrir
hálfleikinn og vorum 4-0 undir í hálfleik. Í seinnihálfleik gerðum við smá breytingar og vorum talsvert líflegri í honum. Náðum að minnka muninn í 4-2 með góðum mörkum frá Semek og Arnari Dóra en lengra komumst við ekki og Léttir náði að setja eitt í viðbót undir lokin. Leikurinn endaði 5-2 og nú er ekkert annað að gera en að bíta á jaxlinn. ![]() Nú eru 3 heimaleikir í röð og nú er málið að ná í einhver stig. Við eigum Augnablik hérna heima föstudaginn 2 júlí kl 20:00, svo kemur topplið Tindastóls í heimsókn þann 10 júlí kl 14:00 og svo er það Léttir aftur sem verður á föstudagskvöldinu á Góðri Stund þann 23 júlí. ![]() Þessir menn eru líklega úr leik í næstu leikjum. 28.6.20104 ný vallarmet á einu mótArion banki 36 holur úrslit Spilað á Bárarvelli og Víkurvelli. Höggleikur - karlar Mótstjórn þakkar öllum sem að mótinu komu gott starf. 26.6.2010Víkingur á toppi 2 deildarVíkingar tóku á móti Hvöt í hörkuspennandi leik í eindæma veðurblíðu á
Ólafsvíkurvelli í dag. Víkingar voru fyrir leikinn í toppsæti
deildarinnar með 14 stig en gestirnir frá Blönduósi í því fjórða með 11.
Það mátti því búast við hörku leik sem og raunin var. Leikurinn fór 3-2 fyrir Víking í hörku leik. Lýsing á gangi leiksins er á víkingssíðunni. 26.6.2010Léttir - UMFG 5-2Föstudaginn 25. júní kl 20:00 mættust Grundarfjörður og Léttir í Breiðholtinu á ÍR vellinum Leikurinn fór 5 - 2 fyrir Létti. Ekki góður dagur hjá Viktor markmanni sem þurfti að sækja boltann of oft á afmælisdaginn ![]() Lið Grundarfjarðar var þannig skipað Aron Baldursson Arnar Dóri Ásgeirsson Birkir Freyr Baldursson Gunnlaugur Smárason Hafsteinn Mar Sigurbjörnsson Heimir Þór Ásgeirsson Hilmir Hjaltason Hrannar Már Ásgeirsson Ingi Björn Ingason Jón Frímann Eiríksson Jón Steinar Ólafsson Ragnar Smári Guðmundsson Runólfur Jóhann Kristjánsson Semek Andri Þórðarson Tómas Freyr Kristjánsson Tryggvi Hafsteinsson Viktor Örn Jóhannsson 26.6.2010Karfan veturinn 2010 - 2011![]() Nú hefur verið dregið í töfluröð fyrir næsta tímabil í Iceland express deildum karla og kvenna. Kvennalið Snæfells byrjar á ferðast til Hveragerðis og mæta Hamri í fyrstu umferð. Karlaliðið fer í Grafarvoginn og mætir Fjölni. Nánar á kki.is Allar umferðir IE-deildar Kvenna Allar umferðir IE-deildar Karla 25.6.2010Sjálfboðaliðar óskast Það verður í mörg
horn að líta við undirbúning og framkvæmd Unglingalandsmótsins. Margar
hendur vinna létt verk og nú er auglýst eftir sjálfboðaliðum sem vilja
leggja sitt af mörkum til að mótið verði sem glæsilegast og um leið góð
kynning fyrir byggðarlagið.
Allir sem vilja leggja hönd á plóg ættu að geta fundið verkefni við hæfi.
Mynd: Sjálfboðaliðar að störfum á unglingalandsmóti. 24.6.2010Fiskmarkaðsmótaröðin á Snæfellsnesi, úrslitÍ gær var spilað síðasta mótið í mótaröð golfklúbba á Snæfellsnesi. Mótið er styrkt af Fiskmarkaði Íslands og þakka klúbbarnir fyrirtækinu gott samstarf. Úrslit mótsins í gær urðu eftirfarandi. Besta skor
Flestir punktar
Einnig voru veitt verðlaun fyrir besta skor úr 3 mótum af 4 Staðan þar varð eftirfarandi. Samanlagt 3 bestu punktar.
og Besta skor sameiginlegt 3 af 4 Guðlaugur Rafnsson á 224 höggum. 24.6.2010Ferðafélagið og ungt fólk26 - 27. júní. Ferðafélagið og ungt fólkGönguferð fyrir göngufólk á aldrinum 15 - 18 ára. Ferðin hefst við Sögumiðstöðina í Grundarfirði kl. 10. á laugardagsmorgni. Gengið er upp með Grundarfossi í botni Grundarfjarðar og að fjallavatni í Vatnsborgum. Þaðan er gengið inn í Hróksdal og reist tjaldbúð með tilheyrandi varðeldi, gleði og upplifun náttúrunnar. Þáttakendur hafi með sér tjöld, mat og viðleguútbúnað. Lágmarksfjöldi er átta þátttakendur og skráningarfrestur er til 23. júní. Fararstjórar eru Aðalsteinn og Lína Hrönn. Bókun og nánari upplýsingar: 8628415, Aðalsteinn. |
Vafraðu umEldra efni HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 37 Gestir í dag: 13 Flettingar í gær: 734 Gestir í gær: 93 Samtals flettingar: 305464 Samtals gestir: 23600 Tölur uppfærðar: 9.9.2010 01:40:29 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||