Í annað sinn á sama mánuði léku KFÍ og Snæfell/Skallagrímur í þetta skiptið
var leikið á Íslandsmótinu og höfðu okkar menn sigur 73-81, staðan í hálfleik
var 36-43. Egill Egilsson var sjóðandi heitur og smellti niður 30 stigum og
fyrirliðinn var Traustur enda Eiríksson með 22 stig.
Heimamenn byrjuðu á að hafa forystu og mest 11-8 en Trausti og Egill sáu um
stigaskorið fyrir gestina og með hjálp frá Birgi Sverris og Sigurður
Þórarinssyni komust Snæfell/Skallagrímur yfir 13-17, fjögur síðustu stig
leikhlutans voru heimamanna og staðan 16-17. Jón Sævarsson KFÍ drengur setti
niður sex stig í röð fyrir heimamenn og kom liðinu yfir 19-17 en Sigurður
Þórarinsson smellti niður góðri körfu úr hraðupphlaupi og þrist í næstu sókn á
eftir, staðan 19-22.
Liðin skiptust á að leiða en í stöðunni 30-32 tók Egill
Egilsson til sinna ráða, KFÍ fóru í svæðisvörn og kappanum boðið uppá veislu að
hætti Gauja Þorsteins sem var léttur á kantinum með Hrein Þorkels sér við
hlið. Egill raðaði niður þremur þristum í jafn mörgum tilraunum og bætti góðri
körfu með því að keyra á körfuna og staðan í hálfleik 36-43. Sigursteinn
Hálfdánarson snéri sig á ökkla og fór af leikvelli.
Egill opnaði síðari hálfleikinn með þrist og Snæfell/Skallagrímur komnir
tíu stigum yfir. Þrjár þriggja stiga körfur í röð frá heimamönnum kom muninum
niður í þrjú stig en Kristján Pétur minnti örlítið á sig í sókninni og svaraði
með einum neðan úr bæ. Snæfell skoruðu grimmt eftir það og lokuðu í vörninni,
staðan 47-58. Florian Jovanor erlendi leikmaður KFÍ-drengja átti fínan leik og
skoraði grimmt úr öllum stöðum. Trausti Eiríks átti öll fráköst sem í boði voru
og Guðni og Birgir Pétursson komu ferskir inn af tréverkinu.
Kanslarinn lét
boltann ganga vel gegn svæðinu og bjó til Berlínargöng fyrir fyrirliðann sem
skoraði átta stig á skömmum tíma. Þorbergur Helgi Sæþórsson kom einsog ungt
naut og barðist vel, uppskar góða körfu og tilþrif leiksins þegar hann var
umkringdur varnarmönnum KFÍ og ætlaði að leysa stöðuna með því að skjóta aftur
fyrir sig, tilraunin góð og ætlaði kappinn að fiska villu á ákafa varnarmenn
KFÍ. Efnilegur piltur á ferðinni sem ætlar sér að standa sig. Snæfell leiddu
58-70 eftir þriðja leikhluta og ekkert í spilunum um spennandi leik.
Snæfell/Skallagrímsmenn náðu fjórtán stiga forystu 60-74 og urðu menn værukærir
í sínum aðgerðum, KFÍ eftir að Birgir Pétursson var búinn að koma gestunum í
62-78 sóttu í sig veðrið í ruslamínútunum og löguðu stöðuna. Lokatölur 73-81 og
góður útisigur í höfn hjá Snæfell/Skallagrím.
Lífið er yndislegt og það var ferðin líka, Egill Egilsson Sr. keyrði
strákana vestur með Adolf Inga í útvarpinu þar sem það náðist og spegluðu
strákarnir sig í fjörðunum þess á milli að þeir horfðu á DVD myndir af Michael
Jordan á leiðinni. Hópurinn þakkar Agli fyrir örugga keyrslu og Leif fyrir
lánið á langferðabílnum sem reyndist liðinu vel á þessari fallegu leið.
Stigaskor Snæfells/Skallagríms: Egill Egilsson 30 stig,
Trausti Eiríksson 22, Sigurður Þórarinsson og Kristján Pétur Andrésson 10,
Birgir Pétursson 4, Birgir Þór Sverrisson 3 og Þorbergur Helgi Sæþórsson 2.
Elfar Ólafsson, Sigurður Sigurðsson og Sigursteinn Hálfdánarson náðu ekki að
skora en léku af góðum krafti, Sigursteinn kom aftur inní leikinn eftir að hafa
snúið sig og sýndi mikla baráttu.
Stigaskor KFÍ: Florian Jovanov 20 stig, Leó Sigurðsson 16,
Jón Sævarsson 14, Hlynur Hreinsson 7, Hákon Vilhjálmsson 6, Sigmundur Helgason 4
og þeir Þorgeir Egilsson, Guðni Guðnason og Óskar Kristjánsson 2.
Vetraríþróttahátíð
ÍSÍ mun standa yfir á Akureyri frá 6. febrúar til 21. mars
næstkomandi. Vetraríþróttahátíðir hafa verið haldnar á 10 ára fresti
frá 1970 og er þetta því í 5. skipti sem hátíðin er haldin.
Um er að ræða samstarf ÍSÍ,
Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands sem staðsett er á Akureyri,
Íþróttabandalags Akureyrar og Akureyrarbæjar. Fyrstu þrjú skiptin sem
hátíðin var haldin var um helgarhátíðir að ræða en árið 2000 var ráðist
í lengri hátíð sem tók yfir sjö helgar og er það endurtekið nú.
Margt verður í boði þessar vikur og er
fjöldi viðburða á dagskrá allar helgarnar á vegum aðildarfélaga ÍBA sem
og annarra félaga. Opnunarhátíð verður haldin í Skautahöllinni á
Akureyri laugardaginn 6. febrúar kl. 16.00 og verður þar m.a. boðið upp
á skrúðgöngu inn á svellið en þar verða fulltrúar allra þeirra sem
bjóða upp á einhverja viðburði í tengslum við Vetraríþróttahátíðina.
Þar verða m.a. mótorhjól, snjósleðar og hestar.
Íslensku keppendurnir sem fara á
Ólympíuleikana í Vancouver verða kynntir á opnunarhátíðinni og verða
myndabandsupptökur af þeim í keppni sýndar með kynningunni.
Upplýsingar um Vetraríþróttahátíðina og viðburði hennar má finna á heimasíðu Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands, vmi.is/vh2010
Merkið hér til hliðar er merki Vetraríþróttahátíðar ÍSÍ 2010.
Í dag eru 49 ár síðan KKÍ var stofnað. Stofnfundurinn var haldinn
sunnudaginn 29. janúar 1961 að Grundarstíg 2a í Reykjavík. Stofnaðilar
voru Körfuknattleiksráð Reykjavíkur, Íþróttabandalag Suðurnesja,
Íþróttabandalag Hafnarfjarðar, Íþróttabandalag Keflavíkur,
Íþróttbandalag Akureyrar og Íþróttabandalag Vestmannaeyja.
Fyrsti
formaður KKÍ var kjörinn Bogi Þorsteinsson. Nefnd var kjörin á þinginu
sem gerði tillögu um Boga sem formann og að Ingi Þorsteinsson, Benedikt
Jakobsson, Matthías Matthíasson og Magnús Björnsson yrðu í stjórn. Ingi
baðst undan kjöri. Var þá stungið upp á Kristni V. Jóhannssyni í hans
stað og voru þeir kjörnir. Uppstillinganefndin var skipuð Inga
Gunnarssyni, Birgi Hermannssyni og Þór Hagalín.
Á næsta ári
verður KKÍ því 50 ára sem verður án efa viðburðarríkt og mun sérstök
afmælisnefnd koma að því að halda upp á afmælið á því ár.
Stelpurnar stóðu sig vel í kvöld og léku ágætisvarnarleik gegn
heimastúlkum.
Staðan eftir fyrsta leikhluta 20-19
Staðan eftir annan leikhluta 36-34
Staðan eftir þriðja leikluta 52-46
Lokastaðan 71-64
Smá lýsing á lokakaflanum, Heiða hjá Njarðvík kemur heimastúlkum yfir 61-56
þegar um 2 mín voru eftir. Gunnhildur smellir þrist og Sherell fær tvö vítaskot
og jafnar með því að setja bæði 61-61. Heiða Valdimarsdóttir setur þá sveittan
þrist og staðan 64-61 og um 26 sek eftir. Sherell setur þrist rúmlega tvo metra
fyrir utan og jafnar 64-64, 17 sek eftir. Boltinn berst til Helgu Jónasardóttir
og hún skorar. Hún klikkar á vítaskotinu og Snæfell bruna upp, Björg Guðrún
misnotar sniðskot og Gunnhildur tekur sóknarfrákastið en eftir mikinn barning
nær hún ekki að nýta færið.
Sherell rýkur þá á boltann þar sem Helga Jónasar er
að taka niður frákastið, klárlega átt að dæma uppkast og 7 sekúndur eftir en
dómarar leiksins voru þeir einu í öllum salnum sem sáu villu og skoruðu
Njarðvíkingar síðustu fimm stigin á vítalínunni og sigurinn heimastúlkna.
Stigaskor Snæfells: Sherell Hobbs 33 stig, Gunnhildur Gunnarsdóttir 14,
Hildur Björg Kjartans, Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir og Björg Guðrún Einarsdóttir
4, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 3 og Helga Hjördís Björgvinsdóttir 1.
Hinn gríðarfagri þjálfari T-Bone hefur fyrirskipað að negla niður fasta æfingar sem hér segir.
Sunnudagur: Létt skokk og svo bolti í íþróttahúsinu kl 19:30 Mánudagur: Útihlaup og svo bolti á sparkvellinum kl 19:30 Þriðjudagur: Frí Miðvikudagur: Æfing í íþróttahúsinu kl 20:10 Fimmtudagur: Útihlaup og svo bolti á sparkvelilnum kl 19:30 Föstudagur: Frí Laugardagur: Frí
Svona
er æfingaprógrammið til að byrja með. Líklegt þykir að þjálfi eigi
eftir að bæta einhverju við þetta þegar nær dregur vori og við förum að
fara alfarið út.
Semsagt skv æfingaplani er útihlaup og bolti á sparkvellinum kl 19:30 í kvöld. Það er augljóslega stuð að hlaupa.
Föstudagskvöldið
5 febrúar næstkomandi mun Grundarfjörður undir stjórn T-Bone hins
ógurlega etja kappi við HK - 3 í æfingaleik sem fram fer í
Akraneshöllinni kl 20:00. Þetta verður fyrsti æfingaleikur
Grundarfjarðar sem undirbýr sig að kappi fyrir átökin í sumar. Allir
velkomnir enda hefur heyrst að þjálfarinn muni stíga trylltan dans í
hálfleik. Ætli nýji búningur Grundarfjarðar verði einhvernveginn svona???
Arnar Þór Hafsteinsson, Víking Ó hefur verið valinn til að taka þátt í úrtaksæfingu vegna U16 ára landsliðinu í knattspyrnu
Freyr Sverrisson, landsliðsþjálfari U16 karla, hefur valið 36 leikmenn
til úrtaksæfinga um komandi helgi og verður æft tvisvar um helgina, í
Egilshöllinni og Kórnum.
4.fl
ka spilaði í Ólafsvík og enduðu þeir í 2.sæti í riðlunum og komast því
í úrslitakeppnina sem áætluð er að verði helgina 6.-7.febrúar. \
2.fl karla spilaði í
Seljaskóla og komust þeir í úrslitaleikinn. Þar spiluðu þeir við lið
Breiðabliks og töðuðu 2-1 og annað sætið raunin.Til hamingju með silfrið.
2.fl kvenna spilaði á sunnudaginn einnig í Seljaskóla.Þær
byrjuðu á því að tapa naumlega fyrir Tindastól þegar lið Tindastóls
náði að skora þegar ein sekúnda var eftir af leiknum. Þær töpuðu síðan
5-0 fyrir Val og gerðu 0-0 jafntefli við Víking R. Þær urðu því í
neðsta sæti í sínum riðli og spiluðu um 7.sætið á mótinu. Þar unnu þær
lið Neista frá Hofsósi 2-0 og 7.sæti raunin.
HSH var með 14 keppendur á mótinu og stóðu þau sig öll vel.
Aldís Ásgeirsdóttir
11
1997
Ásta Kristný Hjaltalín
81
1999
Camilla Rós Þrastardóttir
139
1998
Camilla Rós Þrastardóttir
610
1999
Emil Robert Smith
192
1997
Eydís Bára Ómarsdóttir
204
2000
Gréta Sigurðardóttir
234
1997
Íris Dögg Skarphéðinsdóttir
355
1997
Jóhanna Kristín Sigurðardóttir
371
1997
Jón Páll Gunnarsson
384
1998
Katrín Eva Hafsteinsdóttir
410
1997
Rebekka Rán Karlsdóttir
539
1996
Snjólfur Björnsson
-382
1994
Vaka Þorsteinsdóttir
-437
2003
Vel
yfir 100 sjálfboðaliðar tóku þátt í framkvæmd stærsta, innanhúss
frjálsíþróttamóts, sem haldið hefur verið hér á landi. Mótið var vel
heppnað í alla staði og féllu mörg mótsmet um helgina. Ásdís
Hjálmsdóttir setti nýtt mótsmet þegar hún sigraði stöllu sína úr
Ármanni, Helgu Margréti Þorsteinsdóttir, þegar hún kastaði kúlunni
14,21m. Helga fylgdi fast á eftir með kasti uppá 14,09m. Þorsteinn
Ingvarsson úr HSÞ gerði sér lítið fyrir og stökk 7,33m í langstökki,
sem er lengsta stökk ársins. Jóhanna Ingadóttir úr ÍR var sem fyrr
áberandi og sigraði hún í 3 greinum, langstökk 5,61m, þrístökk 12,43m
og 60m grindarhlaup 9,00sek. Með ofantöldum árangri setti hún mótsmet í
þrístökki og 60m grind.
Helga
Þráinsdóttir úr ÍR bætti sinn persónulega árangur, frá því á RIG
leikunum, þegar hún stökk 1,68m í hástökki og Hulda Þorsteinsdóttir tók
þátt í sinni fyrstu keppni á árinu í stangarstökk, hún bætti einnig
sinn persónulega árangur með stökki uppá 3,65m
Stefanía
Valdimarsdóttir úr Breiðabliki, sem sigraði svo glæsilega í 400m
hlaupinu á RIG leikunum, keppti í 800m á mótinu og setti mótsmet á
tímanum 2:19,63min. ÍR stúlkurnar Dóróthea Jóhannesdóttir og Erna Dís
Gunnarsdóttir settu einnig mótsmet. Dóróthea hljóp 200m á 25,76sek og
Erna hljóp 400m á 60,36sek. Íris Anna Skúladóttir úr Fjölni sigraði
1500m hlaup á tímanum 4:59,21min sem er nýtt mótsmet.
Arnór
Jónsson úr Breiðabliki er í góðu formi þessa dagana, en hann setti
mótsmet í bæði 60m og 200m hlaupi. Arnór hljóp 60m á 7,04 og 200m á
22,73sek. Stefán Guðmundsson úr Breiðabliki sigraði í 3000m hlaupi á
nýju mótsmeti 8:37,58min og Þorkell Einarsson úr FH sigraði í 400m
hlaupi á nýju mótsmeti 50,35 sek.
Snæfell
komst í kvöld upp í 4. sæti Iceland Express deildarinnar með 87-93
sigri á Stjörnunni í Ásgarði. Liðin eru jöfn að stigum en Stjarnan vann
Snæfell með eins stigs mun í Hólminum fyrr á leiktíðinni svo sex stiga
sigur Snæfells skilaði þeim innbyrðisviðureigninni. Sean Burton var
stigahæstur gestanna með 22 stig en Emil Jóhannsson var maður leiksins
með 21 stig og 6 fráköst en hann sýndi stáltaugar á lokasprettinum.
Justin Shouse var stigahæstur í liði Stjörnunnar í kvöld með 22 stig.
Heimamenn
byrjuðu vel og komust í 7-0 eftir þriggja stiga körfu frá Magnúsi
Helgasyni en Hólmarar gerðu ekki sín fyrstu stig fyrr en tæpar fjórar
mínútur voru liðnar af leiknum og þar var Hlynur Bæringsson að verki.
Kjartan Atli Kjartansson breytti stöðunni í 15-9 með tveimur þriggja
stiga körfum í röð og heimamenn leiddu 23-21 eftir fyrsta leikhluta.
Sean Burton virtist ætla að vera með læti fyrir utan þriggja stiga
línuna í kvöld en hann setti þrjá þrista í fyrsta leikhluta.
Heimamenn
voru skrefinu á undan framan af leik en þegar um þrjár og hálf mínúta
voru til hálfleiks jafnaði Emil Þór leikinn í 36-36 og gestirnir leiddu
svo 43-46 í hálfleik eftir snarpan og skemmtilegan fyrri hálfleik.
Liðin
skiptust á forystunni í þriðja leikhluta en þegar líða tók á
leikhlutann sigu heimamenn fram úr. Stjarnan gerði 10 stig án þess að
Snæfell næði að svara. Páll Fannar Helgason rauf svo þögnina með þrist
þegar 47 sekúndur voru eftir af leikhlutanum en Kjartan Atli svaraði
fyrir heimamenn þegar 4 sekúndur voru eftir og staðan 70-63 fyrir
Stjörnuna og lokaspretturinn framundan.
Undir lok
þriðja leikhluta höfðu Snæfellingar skipt yfir í svæðisvörn,
varnarafbrigði sem byssum á borð við Justin, Jovan og Kjartan ætti ekki
að leiðast. Svæðisvörn gestanna var enn við lýði í fjórða leikhluta en
heimamenn áttu bágt með að leysa hana enda gerðu þeir aðeins 9 stig
fyrstu 9 mínútur leikhlutans!
Emil Þór jafnaði
leikinn fyrir Snæfell í 76-76 af vítalínunni og kom sínum mönnum svo í
79-84 með góðu gegnumbroti. Jovan Zdravevski svaraði með þriggja stiga
körfu og staðan 82-84. Strax í næstu sókn valsaði Sigurður Þorvaldsson
í gegnum Stjörnuvörnina og jók muninn í fjögur stig og heimamenn
auðsjánlega svekktir að hafa sofið þarna á verðinum.
Þegar
8 sekúndur voru til leiksloka skoraði Justin Shouse lygilegan þrist og
minnkaði muninn í 87-89. Stjörnumenn brutu strax eftir innkast Snæfells
en það var þeirra ólán að Sean Burton var með boltann, maðurinn sem á
heiðurinn að bestu vítanýtingu deildarinnar. Burton brást ekki
bogalistin og jók muninn í 87-91. Lokatölur urðu svo 87-93 eins og fyrr
greinir.
Emil Þór Jóhannsson fór mikinn í liði
Snæfells og Hlynur Bæringsson lét ekki sitt eftir liggja með 19 stig og
13 fráköst. Emil gerði 21 stig í leiknum og tók 6 fráköst en
stigahæstur var Sean Burton með 22 stig og 6 stoðsendingar en hann
setti niður 4 af 14 þriggja stiga skotum sínum í leiknum, var fínn í
fyrri hálfleik en skotin vildu ekki niður hjá honum í þeim síðari.
Justin
Shouse hefur oft látið betur að sér kveða en í kvöld en var engu að
síður með 22 stig og 10 stoðsendingar. Jovan Zdravevski var nokkuð
lengi í gang en lauk leik með 20 stig og 10 fráköst. Stjörnumenn mega
þó enn glíma við meiðslavesenið þar sem Birkir Guðlaugsson var fjarri
góðu gamni með tognaðan ökkla en Guðjón Hrafn Lárusson lék sinn fyrsta
leik í vetur eftir langvarandi meiðsli og kom sterkur inn með 9 stig og
7 fráköst og á vísast eftir að reynast Garðbæingum vel.
Dómarar leiksins:
Sigmundur Már Herbertsson og Jón Guðmundsson: Höfðu góð tök á leiknum, vel dæmdur leikur
Ljósmynd/ Emil Þór Jóhannsson, besti maður leiksins, sækir að körfu Stjörnunnar. Tekið af karfan.is
Síðastliðinn
laugardag voru rétt 100 ár liðin frá stofnun Ungmennafélags Akraness.
Af því tilefni var boðað til samkomu að Stillholti 16-18 í húsnæði því
sem Haraldur Sturlaugsson og félagar hafa komið upp glæsilegri sýningu
til að minnast þeirra tímamóta að öld er síðan reglubundið íþrótta- og
æskulýðsstarfs hófst á Akranesi. Á laugardaginn var farið yfir söguna,
íþróttafólki veittar viðurkenningar, íþróttafélög fengu styrki og
framgöngumenn voru heiðraðir. Fyrir upphaf dagskrár sló nýstofnuð
Rythmasveit Tónlistarskólans á Akranesi tóninn, en sveitin var nýverið
stofnuð og mun vafalítið setja mark sitt á ýmsa viðburði í
bæjarfélaginu.
2.flokkur karla Snæfellsnes spilaði um helgina á íslandsmóti í futsal,
leikið var í Seljaskóla. Leikið var í tveimur riðlum og vorum við í
riðli með Fram og Breiðablik. Leikurinn við Fram lauk með sigri okkar
manna 3-2 og síðan lentum við í hörku leik á móti Breiðablik sem endaði
3-2 fyrir blikamönnum. Í undanúrslitum lékum við á móti Tindastól og
var það hörkuleikur sem endaði 2-2 og þannig var staðan einnig eftir
framlengingu, þurfti þá að grípa til vítaspyrnukeppni og þar höfðu við
betur. Í úrslitum lentum við á móti Breiðablik aftur og leikurinn
endaði með sigri blika 2-1. Þannig að strákarnir okkar lentu í öðru
sæti af 6 liðum sem mættu til keppni.
Gott silfur gulli betra!
F.v.
Brynjar Gauti, Jón Haukur, Andri Freyr, Alfreð Már, Sindri Hrafn,
Brynjar Kristmunds, Dominik Bajda, Ólafur Hlynur og Suad Begic Þjálfari