|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Fréttir30.11.2009Snæfell tapaði í framlengdum leikSnæfell tapaði með einu eftir framlengingu
![]() Snæfell fór suður með sjó og tóku Grindvíkingar á móti þeim. Þorleifur Ólafsson var veikur hjá Grindavík en Snæfellingar söknuðu Pálma Freys sem á við bakmeiðsli að stríða
Í hálfleik staðan 44-47 fyrir Snæfell.
![]() Hittni Snæfellinga var slök í upphafi fjórða leikhluta á meðan Grindavík voru á setja niður góðar stórar körfur. Páll Axel fékk dæmda á sig óíþróttamannslega villu og setti Hlynur bæði niður og staðan var 83-79 fyrir heimamenn í Grindavík en þeir höfðu haft þægilega forystu sem Snæfell saxaði aðeins á en staðan var 80-71 fyrir Grindavík rétt áður en þeir slökuðu á varnarleiknum og svo voru Arnar og Flake komnir með 5 villur og Ómar 4 villur. Hlynur jafnaði 85-85 fyrir Snæfell þegar 30 sek voru eftir og leikhlé var tekið. Ekki dugði þriggja stiga skot Páls Axels og áttu Snæfellingar frákastið en Sean Burton klikkaði einnig á sínu skoti og Sveinn Arnar líka undir lok hlutans og framlenging var staðreynd og staðan 85-85.
![]()
Hlynur skaut Snæfelli strax í 85-88 og Ómar svaraði í kjölfarið og einnig Brenton. Ólafur setti svo góðann þrist fyrir Grindavík oh komust þeir í 92-88. Sean Burton svaraði svo með tveimur þristum og staðan varð svo 92-94 lengi. En undir lok framlengingar setti Brynjar niður þrist sem kom þeim í 95-94 og ein sekúnda lifði á klukkunni þegar Ingi Þór tók leikhlé. Hlynur Bærings átti síðasta orðið í leiknum og klikkaði skot hans fyrir Snæfell sem beið ósigur í Grindavík í leik jafnra liða 95-94.
Hjá Grindavík var breiddin meiri en Páll Axel fremstur þar með 21 stig. Ómar var með 15 stig og 8 fráköst. Ólafur Ólafs 14 stig. Darrel Flake 13 stig. Brenton 10 stig. Arnar og Brynjar 9 stig hvor en Arnar tók líka 8 fráköst og var með 7 stoðs. Hjá Snæfelli var Sigurður með 24 stig, öll í fyrri hálfleik, og 12 fráköst. Hlynur setti 23 stig og 13 fráköst. Sean Burton kom til í seinni hlutanum og setti 18 stig. Nonni Mæju 15 stig og 8 fráköst. Emil Þór 12 stig. 30.11.2009Bikarkeppni BlaksambandsinsBikarkeppni BlaksambandsinsGrundfirðingar enduðu í 4 og neðsta sæti í sínum riðli eftir 1 umferð í bikarkeppni Blaksambandsinsí fyrsta leik gegn Þrótti R. töpuðu þeir 2 - 0 ( 25-14, 25-19) og síðan spiluðu þeir við Hrunamenn en sá leikur var jafnari og fór 2 - 1 (11-25, 25-20 8-15) fyrir Hrunamönnum á sunnudeginum léku Grundfirðingar við Hamar og fór sá leikur 2-0 (25-20, 25-23) fyrir Hamri Næsta umferð í Bikarkeppninni er svo á Akureyri 12 og 13 febrúar 30.11.2009Íþróttamaður GrundarfjarðarÍþróttamaður ársins í Grundarfirði
Á aðventuhátíð Kvenfélagsins Gleym mér ei s.l. laugardaginn var
valinn íþróttmaður ársins 2009. Að þessu sinni hlaut Dominik Bajda
titilinn fyrir afburða árangur á knattspyrnuvellinum. Auk þess þykir
Dominik sterk og góð fyrirmynd og hann gefur mikið af sér til yngri
iðkenda íþróttarinnar. HSH óskar Dominik til hamingju með titilinn en hann er vel að honum kominn 30.11.2009Fréttir frá MostraSkarphéðinn og Hildur Björg stigameistarar Mostra
Skarphéðinn Skarphéðinsson og Hildur Björg
Kjartansdóttir eru stigameistarar Mostra árið 2009 - Þau fengu verðlaun
sín afhent í lokahófi Mostra í gærkvöldi . Jafnframt fékk Rúnar Örn
Jónsson afhentan háttvísibikar stjórnar Mostra fyrir árið 2009 -
Rúmlega 30 kylfingar mættu í lokahófið og áttu góða stund saman að
afloknu góðu golfsumri (og golfhausti) 29.11.2009Í kvöld, Grindavík- Snæfell![]() 28.11.2009Bikarkeppni BlaksambandsinsGrundfirðingar í 3 sæti í sínum riðli eftir 2 leiki. í fyrsta leik dagsins gegn Þrótti R. töpuðu þeir 2 - 0 ( 25-14, 25-19) og síðan spiluðu þeir við Hrunamenn en sá leikur var jafnari og fór 2 - 1 fyrir Hrunamönnum á morgun leika Grundfirðingar við Hamar
28.11.2009Skellur í Njarðvík![]() Snæfellsstúlkur fóru suður með sjó og mættu Njarðvík. Snæfell sigraði fyrri leikinn í Hólminum en máttu sín lítils í Ljónagryfjunni. Leikurinn endaði 74-52 fyrir Njarðvík og leiddu þær allann timann með 20-25 stigum. Kristen Green skoraði 29 stig og Unnur Lára 10 stig. Komið hefur í ljós að Berglind Gunnarsdóttir er með slitið krossband og óvíst hvort hún leiki meira með Snæfelli á leiktíðinni sem er mikil blóðtaka fyrir okkar stúlkur. 28.11.2009Jólaball með DraugabönumVið sem sjáum um fótboltasamstarfið höfum ákveðið að halda ,, jólaball" fyrir fótboltakrakkana á Snæfellsnesi. Strákarnir í hljómsveitinni Matti IDOL og Draugabanarnir ætla að spila skemmtilega tónlist fyrir krakkana. Það kostar ekkert inn og vonumst við til þess að sjá sem flesta! Staður og stund: Fimmtudagur 3. desember 2009 Samkomuhúsið í Grundarfirði 5. flokkur og yngri mæta kl 18:30 og verða til 20:00 4. 3. og 2. fl mæta kl 20:30 og verða til kl 22:00 Gott væri ef þið krakkar tilkynntuð komu ykkar á bloggsíðum ykkar flokka til þess að við getum vitað ca. hvað margir eru að mæta Foreldrar okkur vantar ykkar aðstoð við þetta og væri gott ef þið tilkynntuð ykkur á bloggsíðunum. Aðstoðin fellst aðalega í því að fylgjast með að allt fari vel fram J Við viljum þakka Draugabönunum kærlega fyrir þetta framtak þeirra en þeir gefa vinnu sína við þetta ball! 27.11.2009Stefán K. hlýtur viðurkenningu EOC26.11.2009Snæfell lagði ValGlæsilegur sigur Snæfellsstúlkna á Val.
![]()
Snæfell og Valur mættust í kvöld í
Fjárhúsinu í Stykkishólmi. Fyrir þennan leik voru liðin jöfn að stigum
í botnsætum deildarinnar með 4 stig hvort og því til mikils að vinna.
Valskonur léku án erlends leikmanns en þær létu bandaríska bakvörðinn
Sakera Young fara frá félaginu fyrir leikinn. Snæfell hóf leikinn með pressuvörn og virtust Valskonur eiga í erfiðleikum með að leysa fram úr því. Hittni beggja liða var ekki upp á sitt besta og var staðan 13-13 þegar Valskonur tóku leikhlé þegar 2 mínútur og 13 sekúndur voru eftir af fyrsta leikhluta. Þegar flautað var til loka fyrsta leikhluta var staðan 15-13 fyrir heimakonur. Kristen Green var komin með 5 stig og 6 fráköst fyrir Snæfellinga en Hanna Hálfdánardóttir með 6 stig fyrir gestina.
Staðan í hálfleik var 34-21 fyrir Snæfell. Stigahæstar í hálfleik í liði Snæfells voru Kristen Green með 17 stig en Unnur Ásgeirsdóttir var með 7 stig. Í liði Vals var Hanna Hálfdánardóttir með 8 stig og Birna Eiríksdóttir með 7 stig.
![]() Staðan í lok þriðja leikhluta var 55-36 Snæfellskonum í vil. Ljóst var á þessum tímapunkti að Valskonur þyrftu að snúa vörn í sókn ef þær ætluðu sér að ná einhverju úr leiknum.
Fjórði leikhluti hófst eins og sá þriðji endaði og sigu Snæfellingar enn lengra fram úr og náðu fljótlega 20 stiga forskoti. Hittni þeirra var góð og grimmur varnarleikur gerði Valskonum erfitt fyrir. Hrafnhildur Sævarsdóttir fór út af með 5 villur þegar 3 mín. 30 sek. lifðu af leiknum og staðan var 65-50. Valskonur höfðu þá aðeins verið að saxa á forskot Snæfellinga en náðu í raun aldrei að hleypa spennu í leikinn. Svo fór að Snæfell hafði sigur 73-52. 25.11.2009Gott gengi í blaki24.11.2009Ný héraðsmet í frjálsumÁ Silfurleikum ÍR um síðustu helgi var sett glæsilegt héraðsmet í kúluvarpi stúlkna 9 -10 ára. Kristrós Erla Baldursdóttir Snæfell kastaði 2 kg kúlu 7.19 m og bætti met Berglindar Gunnarsdóttar frá 2003 sem var 5.67m. Glæsilegt afrek hjá Kristrós og Viktor og óskum við þeim til hamingju með árangurinn 24.11.2009Jóhann Ingi GunnarssonHSH í samstarfi við UMFG bíður upp á fyrirlestur með Jóhann Inga Gunnarssyni, íþróttasálfræðing í Grundarfirði, fimmtudaginn 26 nóvember. Fyrirlesturinn verður í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði og hefst hann kl. 17.00 Jóhann mun vera með fyrirlestur m.a. um hegðun ungs fólks í íþróttum, t.d. efla sjálfstraust, árangurssinnað hugarfar og hvatningu alla leið. Fyrirlesturinn er ætlaður þjálfurum, leiðbeinendum og forsvarsmönnum aðildarfélaga HSH og eru þeir hvattir til að taka frá tíma og sækja fyrirlesturinn sem er aðildarfélögum að kostnaðarlausu.
Þeir sem hafa áhuga að sækja fyrirlesturinn eru beðnir að tilkynna þátttöku á netfangið
24.11.2009Snæfell - Valur, á morgun![]() 24.11.2009Víkingur vann Hvíta riddarannVíkingur fór með sigur af hólmi í fyrsta futsal leik vetrarins gegn sameiginlegu liði Aftureldingar og Hvíta Riddarans. Víkingar skoruðu hvorki meira né minna en 17 mörk gegn 5 mörkum gestanna en leikið var í Íþróttahúsi Snæfellsbæjar síðastliðinn laugardag. Í hálfleik var staðan 7-1 okkar mönnum í vil en í síðari hálfleik var hvergi slegið slöku við og tíu mörkum bætt við. Næsti leikur Víkinga í mótinu fer fram næstkomandi sunnudag þann 29. nóvember þar sem Fjölnismenn verða heimsóttir í Grafarvoginn.
|
Vafraðu umHSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: HSH.isTenglar
Flettingar í dag: 813 Gestir í dag: 70 Flettingar í gær: 1185 Gestir í gær: 78 Samtals flettingar: 54375 Samtals gestir: 6026 Tölur uppfærðar: 10.3.2010 19:23:32 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||