19.01.2012 21:59
KR hefndi í Hólminum í hörkuleik
KR mætti úr veðurofsanum í Hólminn en þar var rjómablíða að
vanda. Snæfellsstúlkur tóku þar á móti þeim og voru fyrir leikinn í 5.
sætinu með 16 stig en KR í 4. með 18 stig.
KR byrjaði yfir 0-6
og Snæfell strögglaði í sóknum sínum svo að Ingi Þór splæsti í leikhlé í
stöðunni 2-6. Það virtist gefa Snæfelli spark og Helga Hjördís setti
strax þrjú stig og meira líf færðist í leikinn og Snæfell stigi á eftir
7-8. Erica Prosser setti einn sjóðheitann þrist og staðan 7-13 fyrir KR
og þær höfðu skrefin framar Snæfelli fram undir lok hlutans þegar staðan
var 14-17 en Alda Leif setti þá einn á flautunni og jafnaði 17-17 en
Alda var einkar drjúg Snæfellsmegin.
Snæfell
komst strax í 24-17 með mikilli baráttu og þáðu fráköstin með þökkkum
eftir að sóknir KR runnu út í sandinn hvað eftir annað. Vörn KR var
ósannfærandi og hæg þegar Snæfell komst í 27-19 og hreyfðu boltann vel í
sókninni. Anna María Ævarsdóttir kom einum þrust í netið strax eftir
leikhlé KR en Hildur Sig svaraði strax á móti og staðan 30-22 fyrir
Snæfell undir miðjann annann leikhluta. Með þrist frá Sigrúnu Sjöfn og
stolnum bolta í næstu sókn með auðveldu sniðskoti frá Erica Prosser
fikraði KR sig aðeins nær 33-27. Snæfell hélt þó forystunni í hálfleik
38-31.
Í hálfleik í liði Snæfells var Alda Leif komin með 11
stig og Hildur Sigurðardóttir 8 stig og 7 stoðsendingar. Þeim næst var
Kieraah Marlow með 6 stig og 8 fráköst. Hjá KR var Bryndís
Guðmundsdóttir þeirra hressust með 10 stig og Erica Prosser henni næst
með 9 stig.
Snæfell komst í 40-31 í upphafi þriðja hluta en KR
saxaði á það fljótt 40-36 þar sem Sigrún Sjöfn setti þrjú. Þrátt fyrir
að Snæfell héldi forkotinu yfir þriðja hluta jafnaði KR 45-45 og komust
svo yfir 45-46 með vítaskotum Hafrúnar Hálfdánardóttur en sóknir
Snæfells voru líkt og hjá KR í fyrri hálfleik skotin duttu ekki í netið.
Anna María setti þrist á síðustu sekúndu þriðja hluta sem gaf KR
forystu 48-49 og leikurinn jafn og spennandi.
Anna
María var sjóðheit utan þriggja stiga línunnar og setti sinn þriðja af
þremur fyrir 50-52 KR í vil. Liðin skiptust á að skora og um miðjann
fjórða hluta var staðan 53-56 fyrir KR og allt í járnum. Helga Hjörís
átti flottann þrist til að jafna fyrir Snæfell 58-58 þegar um 3 mínútur
voru eftir og átti hún fínann kafla og eftir mikið þref og vesen í
sóknum Snæfells jafnaði hún aftur með þrist 63-63 og staðan var 65-65
þegar 30 sekúndur voru eftir.
Sigrún Sjöfn setti þá tvö +
víti í 65-68 og 20 sek. Staðan var 66-68 þegar 5.6 sekúndur voru eftir
og Margrét Kara klikkaði á sniðskoti og braut á Kieraah Marlow og
Snæfell fékk innkast á miðjum sínm vallarhelmingi en eftir tvo sénsa frá
Hildi og Hildi í Snæfelli á að fá boltann niður í netið þá skoppaði
boltinn af og tíminn rann út með 66-68 fyrir KR á töflunni sem tóku
sigurinn með sér heim í þessari umferð og Snæfell grátlega nærri að
tryggja sér framlengingu en mikið stuð þegar þessi lið mætasta.
Tölfræði leiksins