|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
16.01.2012 11:34KeppnisknapinnNámskeiðEndurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands býður upp á fimm helga námskeið fyrir keppendur í íþrótta- og gæðingamótum. Fjórar markvissar kennsluhelgar auk fimmtu helgarinnar þar sem undirbúin er sýning og tekið þátt í formlegu móti. Námskeiðið Keppnisknapinn er hugsað fyrir þá sem vilja auka færni sína og reynslu í algengustu keppnisgreinum íslenska hestsins. Farið verður í þjálfun keppnishestsins, hvernig hann er sem best undirbúinn fyrir hinar ýmsu keppnisgreinar og hvernig sýningar eru útfærðar á árangursríkan hátt. Skilgreindar verða sterkar og veikar hliðar hvers hests og knapa auk þess sem líkamlegt ástand hestsins verður skoðað allt námskeiðið. Kennslan er einstaklingsmiðuð, en lögð áhersla á að nemar fylgist með hver öðrum. Í gegnum allt ferlið verður hugað að markmiðum og þjálfunarstigi hestsins. Yfirumsjón og aðalkennari er afrekskeppnisknapinn og reiðkennarinn Sigurður Sigurðarson. Auk þess koma að kennslunni Lárus Ástmar Hannesson, formaður Gæðingadómarafélagsins og Gunnar Reynisson, sérfræðingur við LbhÍ. Vakin skal athygli á því að ekki er nauðsynlegt að vera með þjálfaðan keppnishest á námskeiðinu en hesturinn þarf að vera mikið taminn og gangtegundir nokkuð hreinar. Námskeiðið verður keyrt samhliða námskeiði fyrir hestadómara og nokkuð verður um sameiginleigar kennslu- og æfingastundir þessara tveggja námskeiðshópa (með fyrirvara um breytingar). Staður og stund: Hestamiðstöð LbhÍ á Miðfossum, 3.-4. febrúar, 17.-18. febrúar, 16.-17. mars, 30.-31. mars og 27.-28. apríl. Tími frá 15:00-22:00 föstudaga, 9:00-18:30 laugardaga. Síðasta helgin verður styttir (86 kennslustundir). Verð: 123.000.- (Kennsla, gögn, veitingar, bás og fóður) Hægt er að leita eftir gistingu á Hvanneyri með sameiginlegri eldhúsaðstöðu gisting@lbhi.is(Lárus) Skráning: endurmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5000 fram komi nafn, kennitala, heimilisfang, sími og netfang. Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 18.000 kr (óafturkræft) á reikninginn 0354-26-4237, kt. 411204-3590. Senda kvittun á endurmenntun@lbhi.is Skráningar: endurmenntun@lbhi.is (fram komi nafn, kennitala, heimili, sími og nafn námskeiðs) eða hafa samband í síma: 433 5000 |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 347 Gestir í dag: 20 Flettingar í gær: 457 Gestir í gær: 122 Samtals flettingar: 836642 Samtals gestir: 87793 Tölur uppfærðar: 23.2.2012 03:11:16 |