|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
16.01.2012 11:32HestadómarinnGæðingadómarafélag LH og Íþróttadómarafélag LH, í samstarfi við Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands, bjóða upp á námskeiðið Hestadómarinn. Nám þetta er fyrst og fremst hugsað fyrir starfandi íþrótta- og gæðingadómara og fólk sem hyggst gerast dómarar en getur einnig nýst víðum hópi áhugasamra hestamanna. Námskeiðið er tilvalið fyrir starfandi dómara til að dýpka þekkingu sína á hestinum og eflast í sínum störfum. Þeir sem hafa hug á að ná sér í dómararéttindi seinna meir fá þarna góðan grunn. Ræktendur fá innsýn í hvað og hvernig hestar eru metnir og einnig er gott að öðlast þekkingu á dómstörfum til að geta metið sína eigin hesta eða aðstoðað keppnisknapa. Þannig á þetta námskeið á að nýtast breytum hópi fólks. Námskeiðið er röð af fjórum helgarnámskeiðum. Námið er sambland af staðarnámi og fjarnámi - nemendur fá verkefni til að vinna á milli helga. Rauði þráðurinn í gegnum allt námskeiðið verður þjálfun í dómum hverrar gangtegundar. Mikilvæg atriði verða samhliða tekin fyrir með fyrirlestrum og sýnikennslum, þau eru meðal annars:
Kennarar koma frá fræðslunefndum Íþrótta- og Gæðingadómarafélaganna auk þess sem Mette Mannseth, reiðkennari og knapi, Benedikt Líndal tamningameistari, Gunnar Reynisson, kennari við LbhÍ og Lárus Ástmar Hannesson, gæðingadómari munu koma að kennslunni.
Námskeiðið verður keyrt samhliða námskeiði fyrir keppnisknapa og nokkuð verður um sameiginleigar kennslu- og æfingastundir þessara tveggja námskeiðshópa (með fyrirvara um breytingar).
Staður og stund: Hestamiðstöð LbhÍ á Miðfossum, 3.-4. febrúar, 17.-18. febrúar, 16.-18. mars, 30.-31. mars og 28. apríl. Tími frá 15:00-20:00 föstudaga, 9:00-18:30 laugardaga og einn sunnudag frá 10:00-15:00 (72 kennslustundir). Valfrjáls æfingdagur verður í tengslum við mót 28. apríl.
Verð: 86.000.- (Kennsla, gögn, veitingar) Hægt er að leita eftir gistingu á Hvanneyri með sameiginlegri eldhúsaðstöðu gisting@lbhi.is(Lárus)
Skráning: endurmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5000 fram komi nafn, kennitala, heimilisfang, sími og netfang.
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 20.000 kr (óafturkræft) á reikninginn 0354-26-4237, kt. 411204-3590. Senda kvittun á endurmenntun@lbhi.is
Skráningar: endurmenntun@lbhi.is (fram komi nafn, kennitala, heimili, sími og nafn námskeiðs) eða hafa samband í síma: 433 5000 Upplýsingar um námið veitir Lárus Ástmar Hannesson s: 898 0548 -larusha@simnet.is |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 357 Gestir í dag: 23 Flettingar í gær: 457 Gestir í gær: 122 Samtals flettingar: 836652 Samtals gestir: 87796 Tölur uppfærðar: 23.2.2012 03:32:29 |