Grindavíkurstúlkur léku í Hólminum í
16 liða úrslitum í bikarkeppni unglingaflokks kvenna síðasta föstudag og
voru heimastúlkur búnar að endurheimta Berglindi Gunnarsdóttur úr
meiðslum fyrir leikinn. Heimastúlkur byrjuðu leikinn af krafti og
leiddu 17-0 áður en fyrsta stigið kom hjá Grindavíkurstúlkum. Staðan
eftir fyrsta leikhluta 25-10.
Annar leikhluti var í járnum þrátt
fyrir að Snæfell hafði náð 38-17 forystu og liðin skoruðu 15 stig hvort
og staðan í hálfleik 40-25. Heimastúlkur fengu frítt framlag frá öllum í
fyrri hálfleik og nýttu sér það inn í þriðja leikhlutann sem þær unnu
25-18 og leiddu 65-43. Sigurinn var aldrei í hættu en Rannveig hjá
Grindavík sýndi fína spretti í fjórða leikhluta en öflugar
Snæfellsstúlkur ætluðu sér áfram í bikarkeppninni og sigruðu 75-57.
Stigaskor leikmanna Snæfells:
Hildur Björg Kjartansdóttir 23 stig, Sara Mjöll Magnúsdóttir 14, Ellen
Alfa Högnadóttir 13, Björg Guðrún Einarsdóttir 12, Berglind
Gunnarsdóttir 11 og Rebekka Rán Karlsdóttir 2. Aníta Rún Sæþórsdóttir og
Silja Katrín Davíðsdóttir léku en náðu ekki að skora.
Stigaskor Grindavíkurstúlkna:
Rannveig Bjarnadóttir 17 stig, Jeanne Lois Sicat 10, Ingibjörg Yrsa
Ellertsdóttir 9, Jóhanna Styrmisdóttir 8, Mary Jean Sicat 6, Katrín
Rúnarsdóttir 4 og Ingibjörg Sigurðardóttir 3. Julia Lane Sicat náði ekki
að skora.
Mynd/ Þorsteinn Eyþórsson