|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
Flokkur: Hestamennska16.01.2012 14:11Reiðnámskeið Reiðnámskeið í Söðulsholti 4 pláss laus á reiðnámskeiðið með Sölva!!!! Reiðnámskeið helgina 28-29 Jan. Kennari verður Sölvi Sigurðsson, en hann hefur m,a stundað reiðkennslu við Háskólann á Hólum. Kennt verður í einkatímum 20 mín tvisvar á dag og mælt er með að fólk fylgist með hinum meðan á kennslu stendur. Helgin kostar 18.000 á mann og innfalið er geymsla fyrir hrossið, kaffi og kökur en viljum biðja fólk um að taka með sér nesti í hádegismat, einnig er hægt að fá nýta eldunaraðstöðuna sem er til staðar. Skráning og nánari upplýsingar í 8995625 eða sodulsholt@sodulsholt.is Með kveðju Dóri og Iðunn. Söðulsholt 16.01.2012 11:34KeppnisknapinnNámskeiðEndurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands býður upp á fimm helga námskeið fyrir keppendur í íþrótta- og gæðingamótum. Fjórar markvissar kennsluhelgar auk fimmtu helgarinnar þar sem undirbúin er sýning og tekið þátt í formlegu móti. Námskeiðið Keppnisknapinn er hugsað fyrir þá sem vilja auka færni sína og reynslu í algengustu keppnisgreinum íslenska hestsins. Farið verður í þjálfun keppnishestsins, hvernig hann er sem best undirbúinn fyrir hinar ýmsu keppnisgreinar og hvernig sýningar eru útfærðar á árangursríkan hátt. Skilgreindar verða sterkar og veikar hliðar hvers hests og knapa auk þess sem líkamlegt ástand hestsins verður skoðað allt námskeiðið. Kennslan er einstaklingsmiðuð, en lögð áhersla á að nemar fylgist með hver öðrum. Í gegnum allt ferlið verður hugað að markmiðum og þjálfunarstigi hestsins. Yfirumsjón og aðalkennari er afrekskeppnisknapinn og reiðkennarinn Sigurður Sigurðarson. Auk þess koma að kennslunni Lárus Ástmar Hannesson, formaður Gæðingadómarafélagsins og Gunnar Reynisson, sérfræðingur við LbhÍ. Vakin skal athygli á því að ekki er nauðsynlegt að vera með þjálfaðan keppnishest á námskeiðinu en hesturinn þarf að vera mikið taminn og gangtegundir nokkuð hreinar. Námskeiðið verður keyrt samhliða námskeiði fyrir hestadómara og nokkuð verður um sameiginleigar kennslu- og æfingastundir þessara tveggja námskeiðshópa (með fyrirvara um breytingar). Staður og stund: Hestamiðstöð LbhÍ á Miðfossum, 3.-4. febrúar, 17.-18. febrúar, 16.-17. mars, 30.-31. mars og 27.-28. apríl. Tími frá 15:00-22:00 föstudaga, 9:00-18:30 laugardaga. Síðasta helgin verður styttir (86 kennslustundir). Verð: 123.000.- (Kennsla, gögn, veitingar, bás og fóður) Hægt er að leita eftir gistingu á Hvanneyri með sameiginlegri eldhúsaðstöðu gisting@lbhi.is(Lárus) Skráning: endurmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5000 fram komi nafn, kennitala, heimilisfang, sími og netfang. Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 18.000 kr (óafturkræft) á reikninginn 0354-26-4237, kt. 411204-3590. Senda kvittun á endurmenntun@lbhi.is Skráningar: endurmenntun@lbhi.is (fram komi nafn, kennitala, heimili, sími og nafn námskeiðs) eða hafa samband í síma: 433 5000 16.01.2012 11:32HestadómarinnGæðingadómarafélag LH og Íþróttadómarafélag LH, í samstarfi við Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands, bjóða upp á námskeiðið Hestadómarinn. Nám þetta er fyrst og fremst hugsað fyrir starfandi íþrótta- og gæðingadómara og fólk sem hyggst gerast dómarar en getur einnig nýst víðum hópi áhugasamra hestamanna. Námskeiðið er tilvalið fyrir starfandi dómara til að dýpka þekkingu sína á hestinum og eflast í sínum störfum. Þeir sem hafa hug á að ná sér í dómararéttindi seinna meir fá þarna góðan grunn. Ræktendur fá innsýn í hvað og hvernig hestar eru metnir og einnig er gott að öðlast þekkingu á dómstörfum til að geta metið sína eigin hesta eða aðstoðað keppnisknapa. Þannig á þetta námskeið á að nýtast breytum hópi fólks. Námskeiðið er röð af fjórum helgarnámskeiðum. Námið er sambland af staðarnámi og fjarnámi - nemendur fá verkefni til að vinna á milli helga. Rauði þráðurinn í gegnum allt námskeiðið verður þjálfun í dómum hverrar gangtegundar. Mikilvæg atriði verða samhliða tekin fyrir með fyrirlestrum og sýnikennslum, þau eru meðal annars:
Kennarar koma frá fræðslunefndum Íþrótta- og Gæðingadómarafélaganna auk þess sem Mette Mannseth, reiðkennari og knapi, Benedikt Líndal tamningameistari, Gunnar Reynisson, kennari við LbhÍ og Lárus Ástmar Hannesson, gæðingadómari munu koma að kennslunni.
Námskeiðið verður keyrt samhliða námskeiði fyrir keppnisknapa og nokkuð verður um sameiginleigar kennslu- og æfingastundir þessara tveggja námskeiðshópa (með fyrirvara um breytingar).
Staður og stund: Hestamiðstöð LbhÍ á Miðfossum, 3.-4. febrúar, 17.-18. febrúar, 16.-18. mars, 30.-31. mars og 28. apríl. Tími frá 15:00-20:00 föstudaga, 9:00-18:30 laugardaga og einn sunnudag frá 10:00-15:00 (72 kennslustundir). Valfrjáls æfingdagur verður í tengslum við mót 28. apríl.
Verð: 86.000.- (Kennsla, gögn, veitingar) Hægt er að leita eftir gistingu á Hvanneyri með sameiginlegri eldhúsaðstöðu gisting@lbhi.is(Lárus)
Skráning: endurmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5000 fram komi nafn, kennitala, heimilisfang, sími og netfang.
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 20.000 kr (óafturkræft) á reikninginn 0354-26-4237, kt. 411204-3590. Senda kvittun á endurmenntun@lbhi.is
Skráningar: endurmenntun@lbhi.is (fram komi nafn, kennitala, heimili, sími og nafn námskeiðs) eða hafa samband í síma: 433 5000 Upplýsingar um námið veitir Lárus Ástmar Hannesson s: 898 0548 -larusha@simnet.is 13.12.2011 21:04Snæfellingur með tamninganámskeiðFrumtamninganámskeið Tveggja helga námskeið í Grundarfirði: Dagana 21.-22. og 28.-29. Janúar Kennari: Guðmundur M. Skúlason Tamningamaður og Þjálfari FT Á námskeiðinu kemur hver nemandi með eitt eða tvö trippi og vinnur með þau báðar helgarnar. Allir þátttakendur fá heimaverkefni til að vinna með á milli helganna. Það sem verður meðal annars farið yfir á námskeiðinu er: Atferli hestsins (Hvernig hugsar hesturinn?) Leiðtogahlutverk (hvað getur maður fengið hestinn til að gera?) Undirbúningur fyrir frumtamningu (Undirbúningur er grunnur að góðum hlutum) Frumtamning er grunnur að góðri tamningu á forsendum hestsins.
Tveir bóklegir tímar (sameiginlegir fyrir alla þátttakendur) Átta verklegir tímar á hvern nemanda sem kemur með tvö trippi. Fjórir verklegir tímar á hvern nemanda sem kemur með eitt trippi. Samantekt í lok hvers dags þar sem farið er yfir verkefni dagsins og spurningum svarað. Miðað er við að allir þátttakendur horfi á tímana hjá hinum og sjái mismunandi hestgerðir og hvernig þær bregðast við á mismunandi hátt. Þá geta allir fengið mikið út úr námskeiðinu J Námskeiðið kostar: Nemandi með eitt hross 15000 Nemandi með tvö hross 25000 Síðasti skráningadagur 16. Janúar Skráning og nánari upplýsingar í síma:7702025 (Guðmundur) Eða á netfangið: mummi@hallkelsstadahlid.is28.11.2011 21:06Vetrarstarf Snæfellings og næstu viðburðirÖflugt félagsstarf verður á vegum Snæfellings í vetur og vonum við að félagar finni nú eitthvað til að taka þátt, þessar dagsetningar eru það sem við stefnum á að halda okkur við en það getur þó alltaf breyst og verða dagssetningar auglýstar betur þegar viðburðir verða auglýstir. Tvö mót í vetur, annars vegar töltmót, 27. janúar og þrí eða fjórgangasmót, 9. mars í Söðulsholti Járninganámskeið, stefnt á fyrstu helgina í janúar, sennilega í Grundarfirði Fara menningarferð 3. mars um Borgarfjörðinn Æskulýðsnefndinni falið að vera með tvo daga fyrir yngri kynslóðina í Reiðhöllinni í Grundarfirði, dagana 12. febrúar og 15. apríl, þar sem verða þrautabrautir, grill og reiðtúr ef veður leyfir. Aðalfundur 28. mars í Stykkishólmi. Reyna að hafa aftur reiðtúr á fjörurnar eins og var reynt s.l. vetur en veðrið hamlaði því að að hægt væri að ferðast með hestakerrur síðast, yrði þetta auglýst með stuttum fyrirvara. Skrifað af Siggu 15.11.2011 01:39Gamlar myndir inn á vef Snæfellings![]() Þessi mynd er tekin á 40 ára afmælismóti Snæfellings 2003 Þarna eru formaður og fyrrverandi formenn sem voru staddir á Kaldármelum.. það verður töluvert verk að koma þessu hér inn. Myndaalbúmin munu heita það sama og hún hefur skrifað í myndaalbúmin sín. Nýjasta albúmið kemur fyrst, og svo næst elsta, þangað til við endum á því elsta. En endilega skrifa athugasemdir við myndirnar ef þið þekkið menn og hross. 04.11.2011 09:57Uppskeruhátíð Snæfellings 11.11.11
Uppskeruhátíð Snæfellings Föstudaginn 11.11.11 kl. 19:30 Innri-Kóngsbakka í Helgafellssveit (í fjósinu sem hefur verið breytt í samkomusal) Frjálslegur klæðnaður, gamli lopinn upplagður og viðurkenning fyrir flottasta höfuðfatið. Grillað verður á staðnum og kostar maturinn 2500 kr. Veitt verða verðlaun fyrir góðan árangur á árinu · Ræktunarbú ársins · Hvatningarverðlaun til þeirra sem sýnt hafa góða takta í keppni · Knapi ársins · Þotuskjöldurinn verður afhentur · Foladasýningin Veglegir vinningar verða í happdrættinu Miðaverð aðeins 1000kr. Látið vita með þátttöku í síðasta lagi á miðvikudaginn 09.11 kl. 22 í netfangið herborgs@hive.is eða síma 893 1584
Vonumst til að sjá sem flesta
Stjórnin
26.10.2011 22:33Uppskeruhátíð SnæfellingsUppskeruhátíð Snæfellings verður haldinn á Innri-Kóngsbakka í Helgafellssveit föstudaginn 11. nóvember,kl 19.30 svo þið megið fara að taka daginn frá. Það verður grillveisla og maturinn á hagstæðu verði.
Nánar verður þetta auglýst þegar nær dregur. En þið megið fara að finna lopapeysuna.
Við erum á fullu að safna vinningum fyrir happdrættið sem verður á Uppskeruhátíðinni Þeir sem vilja koma vinningum til okkar fyrir happdrættið mega hafa samband í netfangið herborgs@hive.is eða síma 893 1584 eða gunnar@logos.is sími 860 2337 ef þið lumið á skemmtiatriði fyrir uppskeruhátíðina, eins ef hesteigendafélögin vilja komi með atriði þá endilega látið okkur vita.
Veitt verða verðlaun fyrir hæst dæmdu kynbótahross ársins og einnig verða knapar verðlaunaðir. Þeir sem hafa verið að láta dæma hjá sér hross á árinu mega koma upplýsingum um dómana til Didda Odds netfangið dodds@simnet.is eða í síma 861 496626.10.2011 22:30Úrslit foladasýningarinnarFoladasýningin gekk vel og vorum við bara ánægð með mætinguna.Eiríkur
setti inn fullt af myndum sem hann tók á sýningunni og þökkum við honum
kærlega fyrir það, þarna sjást allskonar útfærslur af því hvernig skuli
sýna folöld svo þau komist á verðlaunapall. Úrslitin Hryssur ![]() Her er Jara frá Brimilsvöllum 1. Jara frá Brimilsvöllum, jörp Móðir: Yrpa frá Brimilsvöllum Faðir; Breki frá Brimilsvöllum Eigandi Gunnar Tryggvason 2. Gola frá Bjarnarhöfn, ljósjörp Móðir: Rjúpa frá Bjarnarhöfn Faðir: Dofri frá Steinnesi. Eigandi Herborg Sigurðardóttir 3. Aska frá Grundarfirði, brún Móðir: Fluga frá Gundarfirði Faðir: Dofri frá Steinnesi Eigandi Tinna Mjöll Guðmundsdóttir 4. Eilíf frá Stykkishólmi Móðir: Tígla frá Stykkishólmi Faðir: Dagur frá Smáhömrum ll Eigandi Sæþór Þorbergsson 5. Sveifla frá Hrísdal, rauðstjörnótt Móðir: Sigurrós frá Strandarhjáleigu Faðir: Seiður frá Flugumýri ll Eigandi Hrísdalsdhestar Hestar ![]() Hér er Kjarval frá Hellnafelli 1. Kjarval frá Hellnafelli, rauðstjörnóttur Móðir: Snilld frá Hellnafelli Faðir: Kjarni frá Þjóðólfshaga Eigandi Kolla og Diddi 2. Röðull frá Söðulsholti, rauður með halastjörnu Móðir: Lipurtá frá Söðulsholti Faðir: Ábóti frá Söðulsholti Eigandi Söðulsholt 3. Kjölur frá Hrísdal, rauðstjörnóttur Móðir: Þófta frá Hólum Faðir: Sveinn-Hervar frá Þúfu Eigandi Hrísdalshestar 4. Skírnir frá Kverná, móálóttur, tvístjörnóttur Móðir: Dögg frá Kverná Faðir: Álffinnur frá Syðri Gegnishólum Eigandi Rúnar Þór, Ragnar Jóhannsson og Guðfinna Jóhannsdóttir 5. Dagur frá Kóngsbakka, leirljós Móðir: Dís frá Reykhólum Faðir: Máttur frá Leirulæk Eigandi Lárus Hannesson 6. Byr frá Brimilsvöllum, jarp stjörnóttur Móðir: Kviða frá Brimilsvöllum Faðir: Breki frá Brimilsvöllum Eigandi Gunnar Tryggvason Folald sýningarinnar valið af áhorfendum ![]() Dagur frá Kóngsbakka, leirljós Móðir: Dís frá Reykhólum Faðir: Máttur frá Leirulæk Eigandi Lárus Hannesson ![]() Rekstrarstjórinn og aðstoðarmaðurinn hans. Hér er svo skrá yfir öll folöldin sem voru skráð 13.10.2011 16:16Snæfellingur með folaldasýningu í Grundarfirði
Snjall frá Hellnafellni
Folaldasýning verður í Snæfellingshöllinni í Grundarfirði sunnudaginn 23 október kl 14
Skráningarfrestur er til kl 14 föstudaginn 21. október Skráning er 1000 kr. á folald koma þarf fram Eigandi-nafn-uppruni-litur-móðir-faðir einnig má koma með meiri upplýsingar, svo sem einkunnir foreldra eða hvað sem fólk vill að komi fram. Upplýsingar sendist á olafur@fsn.is eða í síma 891 8401 Aðgangseyrir er 1000 kr. og er kaffi innifalið Áhorfendur velja folald sýningarinnar Stjórn Snæfellings 23.09.2011 18:51Námskeið í frumtamninguFrumtamninganámskeið Tveggja helga námskeið í Söðulsholti: Dagana 29.-30. Október og 12.-13. Nóvember Kennari: Guðmundur M. Skúlason Tamningamaður og Þjálfari FT Haustið er góður tími til að frumtemja gæðingsefnin. Á námskeiðinu kemur hver nemandi með tvö trippi og vinnur með báðar helgarnar. Allir þátttakendur fá heimaverkefni til að vinna með á milli helganna. Það sem verður meðal annars farið yfir á námskeiðinu er: Atferli hestsins (Hvernig hugsar hesturinn?) Leiðtogahlutverk (hvað getur maður fengið hestinn til að gera?) Undirbúningur fyrir frumtamningu (Við byrjum ekki að taka stúdentspróf í 1. Bekk!) Frumtamning er grunnur að góðri tamningu á forsendum hestsins.
Tveir bóklegir tímar (sameiginlegir fyrir alla þátttakendur) Átta verklegir tímar á hvern nemanda.
Samantekt í lok hvers dags þar sem farið er yfir verkefni dagsins og spurningum svarað.
Miðað er við að allir þátttakendur horfi á tímana hjá hinum og sjái mismunandi hestgerðir og hvernig þær bregðast við á mismunandi hátt. Þá geta allir fengið mikið út úr námskeiðinu J Námskeiðið kostar 19.000 kr á mann með hesthúsplássi frá föstudagskvöldi fram á sunnudag. 18.09.2011 11:02Vetrarstarf SnæfellingsVetrarstarfið í byrjun vetrarNánar auglýst þegar nær dregur. · Folaldasýningu í reiðhöllinni í Grundarfirði sunnudaginn 23. okt þar sem áhugamenn myndu dæma, áhorfendur fengju svo líka að kjósa. · Uppskeruhátið Snæfellings laugardaginn 12. nóvember · Stefna á 2 daga fyrir krakkana í reiðhöllinni í Grundarfirði, eins og var gert síðastliðinn vetur, en þá var haldinn svona dagur með þrautabraut og grillaðar pylsur á eftir. Ekki komnar dagsetningar
02.08.2011 23:48ReiðnámskeiðReiðnámskeið í Söðulsholti Mándaginn og þriðjudaginn 8-9 ágúst ætlum við að hafa reiðnámskeið fyrir börn /unglinga í Söðulsholti. Kennari verður Randy Holaker frá Skáney. Námskeiðið kostar 10.000, hver hópur verður tekin 2 x 45 á dag. Skráning og nánari upplýsingar 8995625 / 8610175 Síðasti skráningardagur er á föstudaginn 5. ágúst.22.06.2011 11:11Vaktir á landsmóti hestamannaLandsmót Hestamanna 2011 Skagafirði
Hér koma helstu atriði varðandi vaktir á Landsmóti Hestamanna:
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Hugrúnu Ósk Ólafsdóttur í gegnum netfangið landsmothugrun@gmail.com.
Bestu kveðjur, Hugrún Ósk Ólafsdóttir GSM:868-455620.06.2011 06:03Gaman hjá konum í SnæfellingKvennareið Það voru kátar konur sem komu úr reiðtúr og biðu eftir að karlarnir kláruðu að grilla fyrir þær. Þegar klárað var að grill buðu þeir uppá dinner musik Eftir matinn var svo tekið lagið þar sem Lalla stjórnaði söng og Kalli lék undir. Þetta var skemmtileg kvöldstund sem við áttum þarna saman. |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 541 Gestir í dag: 93 Flettingar í gær: 632 Gestir í gær: 101 Samtals flettingar: 825824 Samtals gestir: 85937 Tölur uppfærðar: 5.2.2012 20:29:10 |