|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Flokkur: ULM12.08.2011 17:27Góður árangur og gaman á ULMUnglingalandsmótið á Egilsstöðum
Það voru talsvert mikið færri keppendur í ár frá HSH en þeir
voru tæplega 20 talsins. Þrátt fyrir það stóðu þau sig með miklum sóma
og komu heim með ýmsar viðurkenningar. Snjólfur Björnsson lenti í 2.
sæti í hástökki 16 -17 ára þegar hann stökk 178 cm. Hann varð í 4. sæti í
langstökki og í 8. sæti í 100m spretti.Jón Páll Gunnarsson varð
unglingalands-mótsmeistari í kúluvarpi (1. sæti) 13. ára pilta og
kastaði 11,61 m, hann varð svo í 5. sæti í spjótkasti og kastaði 36,59
m. Stelpur 15-16.ára urðu líka unglingalands-mótsmeistarar í
fótbolta(1. sæti), þjálfari liðsins var Jónas Gestur Jónasson frá
Ólafsvík. Liðið var skipað þeim Rakel, Gestheiði, Thelmu, Selmu, Heklu
Fönn, Rebekku Rán, Elínu, Irmu og Anítu Rún. Þetta var eini hópurinn sem
náði í lið bara með HSH keppendum. ![]() ![]() Þau voru ekki fjölmenn krakkarnir í liði HSH en sönnuðu að margur er knár þótt hann sé smár. ![]() Jón Páll kominn með gullið um hálsinn fyrir sigurinn í kúluvarpinu. ![]() Nett tanaðir körfuboltadrengirnir í Miami. ![]() Blandað lið HSH/UMSS vann gullið í körfu 15-16 ára stúlkna undir stjórn Karls Jónssonar. ![]() Það var greinilegt á leik hins sigursæla liðs17-18 ára guttanna í körfuboltaliðinu Há Ess Há að þeir voru með frábæran þjálfara. ![]() Sigurlið HSH í flokki 15-16 ára stúlkna í knattspyrnu með þjálfaranum Jónas Gesti.
09.07.2011 07:31Unglingalandsmót UMFÍ 2011Næsta Unglingalandsmótin eru vímuefnalaus íþrótta- og fjölskylduhátíð og frábær kostur fyrir alla þá sem velja heilbrigt og vímuefnalaust umhverfi samhliða því að taka þátt í fjölbreyttri íþróttakeppni. Allir á aldrinum 11 - 18 ára geta tekið þátt í íþróttakeppni á Unglingalandsmótinu. Keppendur greiða eitt mótsgjald, kr. 6.000.- og fá með því þátttökurétt í öllum keppnisgreinum. Glæsileg íþróttamannvirki eru til staðar á Egilsstöðum en Landsmót UMFÍ var haldið þar árið 2001 og töluverð uppbygging varð í kringum það mót. Íþróttaleikvangurinn er vel staðsettur í hjarta bæjarins. Sundlaug og íþróttahús er þar rétt við hliðina og öll önnur íþróttamannvirki í næsta nágrenni. Tjaldstæði keppenda verður afskaplega vel staðsett og í göngufæri við keppnissvæðin. Samhliða íþróttakeppninni verður fjölbreytt skemmtidagskrá í boði fyrir alla fjölskylduna á daginn. Þar má nefna að skemmtidagskrá verður í Tjarnargarðinum alla daga. Sprelligosa- og Fjörkálfaklúbbar, leiktæki fyrir born og unglinga og gönguferðir með leiðsögn alla daga fyrir þá sem eldri eru. Þá verða fjölbreyttar kvöldvökur og síðan flugeldasýning á sunnudagskvöldið eins og venja er. 23.12.2010 16:43Gleðileg JólHSH Óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári Þökkum samstarf og stuðning á árinu sem er að líða 02.08.2010 16:49Fréttir af ULM 2010Keppendur HSH á ULM 2010 hefur gengið mjög vel í allri keppni. Þrátt fyrir breytingar og keyrslu á milli tjaldsvæðis og keppnisstaða hafa allir keppendur náð að mæta í sínar greinar og staðið sig mjög vel. Meðal annars unnu stúlkur 13 ára 4 x 100m boðhlaup glæsilega. Öll úrslit eiga að vera kominn inn á ULM http://www.umfi.is/umfi09/unglingalandsmot/urslit/ Síðan er valið íþróttagrein Myndir af keppendum og verðlaunaafhendingu er undir myndir. Úr brekkunni ![]() Magnús á Snorrastöðum í skákkeppninni ![]() 29.07.2010 20:11ULM 2010 hafið13 Unglingalandsmót UMFÍ í Borgarnesi er hafið. ![]() HSH er með 85 keppendur í flest öllum greinum, 6 lið eru í knattspyrnu og 5 lið í körfubolta. Körfubolti hófst í dag kl 13.00 Flest liðin hafa núna spilað og öllum gengið vel. Góð mæting er á tjaldsvæðið og rúmt um alla. Nýtt dreyfikerfi hefur verið sett upp fyrir rafmagn á tjaldsvæðinu og eiga allir kost á að kaupa rafmagn. Nánari fréttir af keppendum og fylgismönnum verða síðar. 27.07.2010 21:19Tímaseðill fyrir frjálsar á ULMTímaseðill fyrir Frjálsar íþróttir er kominn á ULM.is
Föstudagur frá kl. 13:30 til 18:30 Laugardagur frá kl. 10:00 til 17:00 Sunnudagur frá kl. 10:00 til 17:00
25.07.2010 20:16Dagskrá ULM kominn á heimasíðu ULMDagskráin komin á heimasíðuna
Nú er dagskrá 13. Unglingalandsmóts UMFÍ komin inn á heimasíðuna.
Þar er að finna heildardagskrá mótsins auk umfjöllunar um einstaka dagskrárliði.
Þá er þar yfirlitskort yfir Borgarnes og nágrenni þar sem helstu kennileiti eru merkt inn. Smellið á kortið hér til hliðar til að stækka það.
Athygli er vakin á því að móttaka keppenda og afhending gagna er í Upplýsingamiðstöð Vesturlands, Sólbakka 2, en þaðan er ekið inn á tjaldsvæðið. Gestir eru hvattir til að forðast að aka um miðbæ Borgarness með tjaldvagna og fellihýsi.
Móttakan í Upplýsingamiðstöð Vesturlands verður opin fimmtudag og föstudag. Almenn upplýsingagjöf á meðan mótið stendur verður í Grunnskóla Borgarness.
25.07.2010 17:45ULM keppni í körfu hefst á miðvikudagKeppni á unglingalandsmótinu í körfubolta hefst á fimmtudeginum
Þar sem búist er við miklum fjölda keppenda er áætlað að keppni hefjist á hádegi fimmtudaginn 29. júlí.
Það má því búast við að mótsgestir taki að streyma í Borgarnes strax á miðvikudegi. 13.07.2010 13:18Skráning hafinn á ULM 2010Unglingalandsmót UMFÍ -
Borgarnesi Allir á aldrinum 11 - 18 ára geta
tekið þátt í íþróttakeppni á Unglingalandsmótinu. Keppendur HSH greiða eitt
mótsgjald, kr. 4.000.- og fá með því þátttökurétt í öllum
keppnisgreinum. Búseta og aðild að íþróttafélagi skiptir engu máli,
allir hafa jafnan rétt til keppni á mótinu. Keppnisgjald á ULM 2010 er kr 6000.- en HSH niðurgreiðir að hluta og því er áríðandi að skráning fari í gegnum skrifstofu.
Keppnisgreinar á Unglingalandsmótinu verða dans, frjálsíþróttir, glíma, golf, hestaíþróttir, knattspyrna, körfubolti, mótocross, skák og sund. Þá gefst fötluðum kostur á að keppa í sundi og frjálsíþróttum.
Skráning keppenda hefst mánudaginn 12. júlí. Skráningu lýkur á miðnætti
föstudaginn 23. júlí. Senda þarf skráningu á netfangið HSH@hsh.is. Nafn, kennitala, keppnisgreinar, foreldrar, símanúmer og netföng þurfa að vera á skráningunni. Greiða þarf keppnisgjald á reikning. 0191-15-370322 kt 620169-5289 06.07.2010 11:09Unglingalandsmót 2010Unglingalandsmót UMFÍ - Borgarnesi Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið í Borgarnesi um verslunarmannahelgina. Ungmennasamband Borgarfjarðar er mótshaldari þessa Unglingalandsmóts. Unglingalandsmótin eru vímuefnalaus íþrótta- og fjölskylduhátíð og frábær kostur fyrir alla þá sem velja heilbrigt og vímuefnalaust umhverfi samhliða því að taka þátt í fjölbreyttri íþróttakeppni.
Keppnisgreinar á Unglingalandsmótinu verða dans, frjálsíþróttir, glíma, golf, hestaíþróttir, knattspyrna, körfubolti, mótocross, skák og sund. Þá gefst fötluðum kostur á að keppa í sundi og frjálsíþróttum.
Skráning keppenda hefst mánudaginn 12. júlí. Skráningu lýkur á miðnætti föstudaginn 23. júlí.
HSH mætir að sjálfsögðu til leiks á unglingalandsmótið í Borganesi. Fyrirkomulagið verður eins og undanfarin ár. Keppendur, einstaklingar eða lið skrá sig til leiks á með því að senda tölvupóst á HSH@ hsh.is Þar þarf að koma nafn, kennitala, keppnisgrein/ar og nafn foreldra ásamt síma og tölvupóstfangi foreldra.
Greiða þarf keppnisgjald kr 4000.- inn á reikning 0191-15-370322. Kt 620169-5289
Greiðsla á keppnisgjaldi fer í gegnum HSH. Eitt keppnisgjald er fyrir einstakling og fær hann þá keppnisrétt í öllum keppnisgreinum á mótinu. HSH fær úthlutað ákveðnu svæði á tjaldsvæði mótsins þar sem allt okkar fólk ætti að geta komið sér vel fyrir. Þar mun HSH setja upp samkomutjald þar sem hægt verður að setjast niður, spjalla og hafa gaman.
Farastjóri verður Garðar Svansson. 25.06.2010 09:26Sjálfboðaliðar óskast Það verður í mörg
horn að líta við undirbúning og framkvæmd Unglingalandsmótsins. Margar
hendur vinna létt verk og nú er auglýst eftir sjálfboðaliðum sem vilja
leggja sitt af mörkum til að mótið verði sem glæsilegast og um leið góð
kynning fyrir byggðarlagið.
Allir sem vilja leggja hönd á plóg ættu að geta fundið verkefni við hæfi.
Mynd: Sjálfboðaliðar að störfum á unglingalandsmóti. 15.06.2010 14:15ULM 2010 samstarfsaðilarSamningar undirritaðir við samstarfsaðila vegna
unglingalandsmótsins
Samstarfsaðilarnir sem hér um ræðir eru Vífilfell,
Landsbankinn,Samkaup, Síminn, Einar J. Skúlason,
Prentment, Lýðheilsustöð, og menningar- og menntamálaráðuneytið.
07.06.2010 09:36ULM 2010 UndirbúningurMargrét Baldursdóttir verkefnastjóri Margrét Baldursdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri 13. Unglingalandsmóts Ungmennafélags Íslands sem verður haldið í Borgarnesi dagana 30. júlí til 1. ágúst í sumar.
Margrét er menntaður tölvunarfræðingur og hefur lokið námi í viðburðastjórnun frá Háskólanum á Hólum.
Margrét sagði alveg ljóst að við undirbúning á svona móti væri í mörg horn að líta.
,,Ég hef verið að skoða fyrri mót og koma mér þannig betur inn í starfið. Starfið leggst vel í mig og það verður gaman að vera í Borgarnesi í sumar. Mér finnst það mjög spennandi verkefni að koma að undirbúningi þessa móts og hlakka mikið til þegar stóra stundin rennur upp," sagði Margrét Baldursdóttir.
Mynd: Margrét Baldursdóttir verkefnastjóri Unglingalandsmót UMFÍ sem verður í Borgarnesi í sumar. |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 541 Gestir í dag: 93 Flettingar í gær: 632 Gestir í gær: 101 Samtals flettingar: 825824 Samtals gestir: 85937 Tölur uppfærðar: 5.2.2012 20:29:10 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||