|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Flokkur: blak07.12.2011 21:09Blakfréttir frá UMFGNú er blakið hjá krökkunum komið vel af stað með nýjum þjálfara og gengur það ágætlega. Fyrri hluta Íslandsmóts er lokið en yngri flokkar, 4. - 5. flokkur áttu að spila á Neskaupsstað en ekki náðist í lið og bæði erfitt og langt að fara. Blakarar í 3. flokki kvenna og 2. flokki karla fóru á fyrri hluta Íslandsmóts í Mosfellsbæ helgina 27. -28. nóvember. Kvennaliðið fékk tvær stelpur úr Ólafsvík til að spila með, en þær eru farnar að mæta á æfingar í Grundarfirði og er það bara skemmtilegt. Stelpurnar lentu í 3. sæti af fimm liðum í A-riðli og er það flott hjá þeim. Stelpurnar unnu tvo leiki á mót Stjörnunni og Þrótti Nes. E, en töpuðu tveimur leikjum á móti Þrótti Nes. og KA Akureyri. Strákunum gekk ekki eins vel þar sem þeir töpuðu sínum leikjum. Erfitt var að ná í lið og voru fjórir leikmenn á fyrsta ári í 3. flokki en tveir góðir strákar í 2 flokki voru meiddir á fæti svo þetta var mjög erfitt hjá þeim. Seinni hlutinn verður í Kópavogi í vor og verður þá vonandi farið með fleiri lið.
Krakkar: munið eftir því að skila búningum ![]() 03.11.2011 08:15Blakmót 16. okt.Sunnudaginn
16 október var farið á blakmót í Mosfellsbæ. Umfg fór með 4 lið í 6 - 3
flokk. Krakkarnir kepptu í nýjum búningum sem Ungmennafélagið var að
kaupa með styrk frá Landsbankanum. Grundfirðingum gekk ágætlega en ekki
voru mörg lið mætt til leiks en var þetta bara góð æfing og skemmtun
fyrir krakkana og ekki síður fyrir foreldra sem voru á staðnum. ![]() Ekki
verður farið á Íslandmót í blaki fyrir 5 - 4 fl. sem haldið verður á
Neskaupstað 11 -13 nóvember þar sem ekki var nógu mikil skráning og
langt að fara en seinni hluti verður í Kópavogi í vor og þá verður
stefnan tekin þangað með alla flokka. ![]() Einnig
viljum við minna á skráningu á Íslandsmótið sem fram fer í Mosfellsbæ
fyrir 3 og 2 fl. sem haldið er dagana 25 -27 nóvember. Kveðja Blakráð 28.10.2011 23:05Blakveisla í Stykkishólmi nú um helgina![]()
Íþróttaviðburður ársins í Stykkishólmi!
Blakdeild Snæfells mun sömu helgi hefja sölu á happadrættismiðum sem er fjáröflun deildarinnar fyrir veturinn. Vinningaskráin er enn glæsilegri en í fyrra og má þar nefna kr. 20.000,- inneign í Bónus, kr. 10.000,- bensínúttekt hjá Orkunni, olíutékk hjá Dekk og smur, útað borða hér og þar, gistingar á hótelum og fullt af öðrum vinningum, inneignum og gjafabréfum á ólíklegustu stöðum. Miðaverð er það sama og í fyrra eða kr. 1.000,- Við munum svo gleðja hjörtu bæjarbúa með því að ganga í hús og bjóða miðana til sölu í nóvembermánuði og svo verður dregið þann 1. des.
Stjórnin
![]() 11.10.2011 18:33Fréttir frá blakdeild UMFGBlakmót Varmá, Mosfellsbæ 16 október 2011
Áætlað er að fara á blakmót í Mosfellsbæ þann 16 október sem er fyrir 6-2 fl. ef næg þátttaka fæst. Verður þetta smá upphitun fyrir Íslandsmótin sem eru nú í nóvember. Vinsamlega skráið ykkur hjá Unni á unnur@bref.is eða í síma 891 6007 fyrir miðvikudaginn 12 október fyrir kl. 21:00, Áætlað er að foreldar komi börnum síðnum á staðinn en alltaf er gott að sameina í bíla.
Einning viljum við kanna áhuga hjá foreldrum barna í 5 - 8 bekk (5 -4 fl. ) hvort þeir hafi áhuga á að fara með krakkana á Íslandsmót í blaki sem verður á Neskaupstað 11 - 13 nóvember þar sem við verðum að fara að undirbúa okkur fyrir ferðina þar sem þetta er langt ferðalag. Vinsamlega látið vita ef þið hafið áhuga á að leyfa krökkunum að fara og hugsanlega hvejir geti farið á bíl á unnur@bref.is. Skráning þarf að vera búin fyrir 20 október.
Kveðja Blakráð 06.10.2011 08:57Bikarkeppni BlaksambandsinsBúið er að draga í bikarkeppni BLÍ. Dregið var
í riðla eins og undanfarin ár og var nokkur spenna í fundarsal í
húsakynnum Íþróttamiðstöðvarinnar.
Jason Ívarsson,
formaður BLÍ sá um að draga en byrjað var á því að kasta upp á hvort
riðill A eða riðill B hefði fjögur lið í karlaflokki. Sjö lið skráðu sig
til leiks og sagði uppkastið til um að A riðill yrði fylltur með fjórum
liðum. B riðill yrði því með þremur liðum þar sem spiluð er tvöföld
umferð. Fyrir í A riðli karla eru Mikasadeildarmeistarar KA. Upp úr hattinum komu lið Þróttar Nes, Þróttar Reykjavík og UMFG. Fyrir í B riðli karla eru HK. Upp úr hattinum komu lið Stjörnunnar og Fylkis. Í kvennaflokki voru það 8 lið sem skráðu sig. Fjögur lið eru þá í hvorum riðli fyrir sig. Fyrir í A riðli kvenna eru Mikasadeildarmeistarar Þróttar Nes. Upp úr hattinum komu lið KA, Ýmis og Þróttar Reykjavík. Fyrir í B riðli kvenna eru HK. Upp úr hattinum komu lið Eikar, Stjörnunnar og Aftureldingar. Undankeppni
1 verður haldin í Fagralundi helgina 21.-22. október 2011. Leikir
hefjast kl. 19.00 á föstudeginum og kl. 10.00 á laugardeginum og verður
leikið fram eftir degi. Niðurröðun leikja kemur á blak.is í þessari
viku. Undankeppni 2 verður haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri 10. og 11. febrúar 2012. Úrslitahelgi bikarkeppni BLÍ verður haldin 16.-18. mars 2011. 23.09.2011 08:57Dómararnámskeið í BlakiBlaksamband Íslands og HSH halda dómaranámskeið í blaki Námskeiðið verður haldið 30 september í Sögumiðstöðinni Grundarfirði Námskeiðið hefst 17:30 og eru þátttakendur beðnir um að hafa meðferðis íþróttaföt vegna verklegrar kennslu og prófs. Allir blakarar á Snæfellsnesi eru hvattir til að taka þátt. Mjög gott er fyrir blakara að taka þátt í námskeiðinu og fá fræðslu um leikreglur íþróttarinnar þó ekki sé endilega stefnt að því að verða dómari Þátttökugjald er 2500kr. Greiðist á staðnum Skráning sendist á netfangið hsh@hsh.is fyrir kl. 20 á fimmtudaginn 29 september. 14.05.2011 00:41Gott gegni Grundfirðinga á ÖldungFrábær árangur á ÖldungamótiHið árlega öldungamót Blaksambands Íslands var haldið í Vestmannaeyjum dagana 5. - 7. maí. Blakarar 30 ára og eldri eru löglegir keppendur á þessu móti. Það voru um 1000 keppendur sem mættu til leiks og var það met þátttaka. Alls var spilað í 6 karladeildum og 12 kvennadeildum. Blakdeild UMFG sendi 3 lið, 2 kvennalið og 1 karlalið. Kvennaliðin spiluðu í 4. deild og 9. deild en karlaliðið í 3. deild. Bæði kvennaliðin komust upp úr sinni deild en karlaliðið verður áfram í 3. deild. UMFG
A kvenna spilaði í 4. deild og lenti í 2. sæti og spilar því í 3. deild
á næsta ári. UMFG B kvenna vann alla sína leiki og lenti í 1. sæti og
mun spila í 8. deild á næsta ári.
Þjálfarar
kvennadeildar eru mjög ánægðir með gott gengi kvennablaksins í vetur.
Alls hefur þremur bikurum verið landað, Íslandsmeistaratitli,
Héraðsmeistaratitli og deildarmeistaratitli á öldungamóti.
04.04.2011 07:38UMFG íslandsmeistarar í 5 fl stúlknaUm helgina var spilað í Íslandsmóti yngriflokka
BLÍ að Varmá í Mosfellsbæ. Íslandsmeistarar voru krýndir í 2., 3., 4.
og 5. flokki í báðum kynjum.
Yngri kynslóðin keppti
um helgina í síðari hluta Íslandsmótsins að Varmá í Mosfellsbæ.
Samanlögð úrslit tímabilsins tryggðu verðlaun til bestu liðanna. Nokkur lið frá Snæfellsnesi tóku þátt og lönduðu UMFG stúlkur í 5fl Íslandsmeistartitli og stúlkur í 4fl náðu 3 sæti. Glæsilegur árangur Helstu úrslit mótisins urðu eftirfarandi Í 2. flokki karla voru aðeins tvö lið, HK og Stjarnan. HK hafði betur þetta árið og vann Íslandsmeistaratitilinn. Í
2. flokki kvenna voru þrjú lið og voru liðin jöfn eftir fyrri
umferðina. Stjarnan varð Íslandsmeistari í flokknum eftir að vinna bæði
HK og Þrótt Nes í dag. HK varð í öðru sæti og Þróttur Nes í því þriðja. Í
3. flokki drengja varð KA Íslandsmeistari eftir harða baráttu við
Stjörnuna. KA liðið tapaði færri hrinum en Stjarnan í vetur og varð
Stjarnan að láta sér lynda 2. sætið að þessu sinni. HK endaði í þriðja
sætinu. Í 3. flokki stúlkna A liða varð Stjarnan Íslandsmeistari. Þróttur Nes varð í öðru sætinu og HK í því þriðja. Í 3. flokki stúlkna B liða varð Þróttur Nes Íslandsmeistari, Stjarnan í öðru sæti og Sindri í því þriðja. Í
4. flokki drengja varð HK Íslandsmeistari með 21 stig, KA drengir voru
með 20 stig í öðru sætinu og Afturelding í því þriðja með 16 stig. Í 4. flokki stúlkna A liða varð Stjarnan Íslandsmeistari. Í öðru sæti var HK A og í því þriðja endaði UMFG. Í 4. flokki stúlkna B liða varð Afturelding Íslandsmeistari, Stjarnan í öðru sætinu og Sindri B í því þriðja. Í
5. flokki pilta A liða var Skellur Íslandsmeistari og Afturelding í
öðru sæti með einni tapaðri hrinu meira en Skellur. Þróttur Nes lenti í
þriðja sætinu. Í 5. flokki pilta B liða var Stjarnan Íslandsmeistari, Afturelding a í öðru sæti og Afturelding 1 í því þriðja. Í 5. flokki stúlkna A liða varð UMFG Íslandsmeistari, Þróttur Nes í öðru sætinu og Skellur í því þriðja. ![]() 30.03.2011 18:31Íslandsmót yngriflokka í blakiSíðari hlut Íslandsmóts yngriflokka verður haldið að Varmá í Mosfellsbæ
um helgina. Um er að ræða stórt mót þar sem allir flokkar spila á
tveimur dögum. Íslandsmótið er í 2.-5. flokki en 6. flokkur mun einnig spila í mótinu. Samtals fjöldi liða í mótinu eru 73 lið frá 19 félögum. Fjöldi liða í 4.-6. fl. 54 Fjöldi liða í 2.-3. fl. 19 Um
það bil 450 börn og ungmenni á aldrinum 7 til 20 ára taka þátt í
Íslandsmótinu að þessu sinni en samhliða því verður mót í 6. flokki á
sunnudeginum Íslandsmótið hefst laugardaginn 2.
apríl kl. 09.30 en alls verða spilaðir 160 leikir til að verða hálftvö á
sunnudag. Kvöldvaka verður í skólanum á laugardagskvöldinu þar sem
liðin gista. Þátttökuliðafjöldi eftir félögum: Flest frá Þrótti Nes: 12 lið Afturelding með 8 lið og 2 í 6.fl. HK með 10 lið og 2 í 6.fl. Stjarnan með 10 lið. . KA með 4 lið, Þróttur R með 2 lið Skellur með 4 liðí Sindri með 4 lið UMFG með 6 lið Vík-Reynir með 3 lið Fylkir með 4 lið Bjarmi með 2 lið Dímon með 1 lið Í
2. og 3. flokki er spilað eftir venjulegum blakreglum en í 4.- 6.
flokki eftir reglum í krakkablaki. Það er blakdeild Aftureldingar sem
sér um mótið að þessu sinni en deildin stillir upp 12 völlum í
Íþróttamiðstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ. 26.03.2011 21:19UMFG konur unnu 3 deild í blaki,3. Úrslit, Konur8 lið - Tveir 4 liða riðlar + tveir tvöfaldir krossar
![]() 15.03.2011 16:13Héraðsmót í BlakiHéraðsmót HSH í blaki kvenna var haldið í Stykkishólmi fimmtudaginn 10 mars 2011 Þrjú lið voru skráð til leiks, UMFG, Víkingur-Reynir og Snæfell. UMFG sigraði báða sýna leiki 2-0 og urðu Hérðasmeistarar HSH 2010-2011. Vikingur-Reynir varð í öðru sæti með einn leik unnin og Snæfell í þriðja sæti.
22.02.2011 11:30Fréttir úr blaki kvenna 3 og 4 deildÍslandsmót í 3. og 4. deild kvennaAlls
tóku 19 lið þátt í mótinu, 7 í 3. deild kvenna og 12 í 4. deild kvenna.
Nokkuð var um jafna og spennandi leiki að þessu sinni en Skellur vann
alla sína leiki í 3. deild kvenna og endaði í efsta sæti mótsins. Í öðru
sæti varð lið UMFG og í þriðja sæti nágrannar þeirra Víkingur-Reynir.
Bresi átti svo liðin í 4. og 5. sæti mótsins, Hamar endaði í 6. sæti og
Umf.Hrunamenn í því sjöunda. Úrslitakeppni fer
fram í þessari keppni 25.-26. mars nk. í Fagralundi í Kópavogi. Liðin
raðast í tvo riðla og bætist við áttunda liðið sem sigurvegari
Austurlandsriðils 3. deildar. Riðlaskiptingin er svona: A riðill Skellur Víkingur-Reynir Bresi B Umf. Hrunamenn B riðill 1. sæti Austurriðils UMFG Bresi Hamar Tvö efstu sætin spila til undanúrslita og úrslita og í neðri hlutanum verður spilað upp á sæti. Í
4. deild kvenna var keppt í fyrsta sinn. Keppni var nokkuð jöfn og
spennandi og er ljóst hvaða lið spila um deildarmeistaratitilinn.
Úrslitin verða spiluð í Fagralundi 25. og 26. mars og munu þrjú efstu
lið í hvorum riðli spila um efstu sex sætin. Þrjú neðstu liðin spila um
sæti 7-12. Liðin sem spila um efstu sex sætin eru: Afturelding B, Stjarnan C, Afturelding C, Dímon, Stjarnan B og Álftanes B. Liðin sem spila um sæti 7 til 12 eru: Snæfell, HK C, Fylkir, HK D, HK E og UMFL. nánar á blak.is 14.01.2011 15:44Blakfréttir frá UMFG
23.12.2010 16:43Gleðileg JólHSH Óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári Þökkum samstarf og stuðning á árinu sem er að líða 17.12.2010 13:31Bikarmót yngri flokka í blakiBlakdeild Fylkis heldur Bikarmót yngriflokka 2011. Mótið verður haldið 22.-23. janúar í Fylkishöll en búið er að opna fyrir skráningar á www.krakkablak.bli.is
|
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 541 Gestir í dag: 93 Flettingar í gær: 632 Gestir í gær: 101 Samtals flettingar: 825824 Samtals gestir: 85937 Tölur uppfærðar: 5.2.2012 20:29:10 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||