|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
Flokkur: Körfubolti04.02.2012 07:52Snæfell í 5 sætiLið Snæfells vann þýðingarmikinn sigur á heimavelli er liðið mætti Þór frá Þorlákshöfn í Iceland Express deildinni í körfubolta. Fyrir leikinn höfðu Þórsarar tveggja stiga forskot á Hólmara í fimmta sæti deildarinnar, forskot sem nú er uppurið í kjölfar úrslita gærkvöldsins. Snæfell vermir því fimmta sætið nú með 16. stig.
Þórsarar hófu leikinn af fullum krafti gegn andlausum Hólmurum og var staðan 2-15 um miðbik leikhlutans. Ingi Þór Steinþórsson tók leikhlé á þessum tímapunkti sem gaf góða raun því Snæfellingar girtu sig í brók að því loknu og náðu að minnka muninn. Staðan að loknum fyrsta leikhluta var 15-20 fyrir Þórsara. Í öðrum leikhluta uxu Hólmurum ásmegin.
Náðu þeir forystu í upphafi leikhlutans og áður en langt um leið sigu
þeir fram úr gestunum undir forystu Marquis Sheldon Hall og Jóns Ólafs
Jónssonar. Var forystan 30-22 þegar mest lét. Þórsarar svöruðu þó á móti
undir lok leikhlutans og var staðan 39-37 í hálfleik, Snæfell í vil. Snæfellingar héldu forystu sinni í þriðja leikhluta og voru að
jafnaði yfir með 6-8 stigum. Héldu þeir þar með Sunnlendingum í
seilingafjarlægð og höfðu að endingu sex stiga forskot að loknum
leikhlutanum, 58-52. Spennan var í algleymingi í lokaleikhlutanum. Þórsarar hófu
leikhlutann með áhlaupi á heimamenn sem leiddi til fjögurra stiga
forystu eftir um fimm mínútna leik. Hólmarar jöfnuðu metin og skiptust
liðin á forystunni fram í blálokin. Fór svo að Þórsarar leiddu með
tveimur stigum. 74-76, þegar sjö sekúndur lifðu af leiknum. Þá áttu
gestirnir víti sem þeir klikkuðu úr og voru handtök Snæfellinga hröð því
áður en flautan gall náði Marquis Sheldon Hall að jafna metin og
framlengja leikinn við mikinn fögnuðu heimamanna. Framlengingin var liði Snæfells auðveld viðfangs og náði það þægilegri forystu fljótt sem það hélt til leiksloka. Munaði sérstaklega um góða vítanýtingu Hólmara í framlengingunni. Loktölur urðu 93-86 Stigahæstur í liði Snæfells var Marquis Sheldon Hall með 24 stig. Á eftir honum kom Pálmi Freyr Sigurgeirsson með 15 stig, Jón Ólafur Jónsson með 13, Hafþór Ingi Gunnarsson 12, Ólafur Torfason 10, Quincy Hankins-Cole 10 og 15 fráköst og loks Sveinn Davíðsson með 9 stig. 02.02.2012 10:32Snæfell með mikilvægan sigur á KeflavíkSnæfell með tök á meisturunum í Hólminum
![]()
![]() 27.01.2012 08:53Snæfell vann KR
26 01 2012 | 21:09Úrslit: Snæfell kvittaði fyrir bikartapið í DHL-HöllinniÍ kvöld hófst þrettánda umferðin í
Iceland Express deild karla þar sem allra augu beindust að viðureign KR
og Snæfells en liðin mættust einmitt á mánudag þar sem KR sló Hólmara út
í Poweradebikarkeppninni. Í kvöld komu Ingi Þór Steinþórsson og
lærisveinar fram hefndum með 93-94 sigri í enn einum spennuslag þessara
liða. KR-Snæfell 93-94 (22-20, 31-22, 18-28, 22-24) KR:
Joshua Brown 23/7 fráköst/5 stoðsendingar, Robert Lavon Ferguson 17/14
fráköst, Finnur Atli Magnusson 16/9 fráköst, Dejan Sencanski 14/7
fráköst, Hreggviður Magnússon 11, Martin Hermannsson 7, Ólafur Már
Ægisson 3, Skarphéðinn Freyr Ingason 2, Oddur Rúnar Kristjánsson 0, Páll
Fannar Helgason 0, Kristófer Acox 0, Jón Orri Kristjánsson 0. Snæfell:
Quincy Hankins-Cole 27/7 fráköst, Jón Ólafur Jónsson 22/9 fráköst/5
stoðsendingar, Marquis Sheldon Hall 17/5 stoðsendingar, Hafþór Ingi
Gunnarsson 9, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 6/6 fráköst, Sveinn Arnar
Davidsson 6/5 fráköst, Ólafur Torfason 4, Óskar Hjartarson 3, Magnús
Ingi Hjálmarsson 0, Þorbergur Helgi Sæþórsson 0, Snjólfur Björnsson 0,
Daníel A. Kazmi 0. 24.01.2012 10:16Snæfell féll út í tvíframlengdum leikJoshua Brown tryggði KR í kvöld farseðilinn inn í undanúrslit Poweradebikarkeppninnar eftir 111-104 sigur KR gegn Snæfell í tvíframlengdum háspennuleik. Brown gerði 49 stig í leiknum og þegar í harðbakkanna sló tók hann KR liðið á bakið og bar það í átt að sigri, mögnuð frammistaða hjá þessum áræðna leikstjórnanda. ![]() Áður en leikurinn hófst var mínútu þögn til minningar um knattspyrnumanninn Sigurstein Gíslason sem nýverið féll frá eftir erfið veikindi en Sigursteinn gerði garðinn m.a. frægan með KR á sínum tíma og varð bæði Íslands- og bikarmeistari með klúbbnum. Sigursteinn gekk í raðir KR árið 1999 en þá varð liðið bæði Íslands- og bikarmeistari í knattspyrnu. Heimamenn í KR byrjuðu betur og léku þétta vörn, lítið var skorað á upphafsmínútunum en það fóru þó að detta körfur og KR tók frumkvæðið 6-0. Ingi Þór splæsti þá í leikhlé fyrir Hólmara sem komu út með fimm stig í röð en þá tók KR aftur á rás, mættu með 7-0 áhlaup og staðan 13-5. Dejan Sencanski kom KR svo í 26-15 með þriggja stiga körfu og röndóttir leiddu síðan 27-17 að loknum fyrsta leikhluta. Hafþór Gunnarsson og Ólafur Torfason létu vel að sér kveða í liði gestanna í öðrum leikhluta þar sem Snæfell skoraði 30 stig gegn 18 frá KR og leiddu gestirnir því 44-46 í leikhléi. Jón Ólafur Jónsson var daufur í dálkinn í fyrri hálfleik í liði Snæfells og skoraði sín fyrstu stig eftir 15 mínútna leik. Robert Ferguson var að stríða stóru leikmönnum Snæfells og dró þá vel út úr teignum og setti m.a. tvo þrista í leikhlutanum en það voru þó Hólmarar sem leiddu. Ferguson var með 12 stig hjá KR í hálfleik og þeir Brown og Sencanski 10. Hjá Snæfell voru Hafþór og Marquis Hall báðir með 11 stig. KR opnaði þriðja leikhluta 10-0 og mættu með flotta vörn inn í síðari hálfleikinn. Snæfell gekk illa að finna leið upp að körfu KR og þeir Jón Ólafur Jónsson og Quincy Hankins-Cole fengu báðir sína fjórðu villu í þriðja leikhluta. Með hverri mínútunni í þriðja leikhluta
hitnaði undir Brown leikstjórnanda KR og lokaði hann þriðja leikhluta
með flautukörfu uppi á lyklinum og KR leiddi 66-61 fyrir fjórða og
síðasta leikhluta. Það var ekki fyrr en undir lok fjórða
leikhluta sem Snæfell færðist nær, Brown reyndi hvað hann gat til að
halda Hólmurum fjarri og aðrir KR-ingar voru í nokkru áhorfendahlutverki
með þá Ferguson og Sencanski á bekknum með fimm villur en sá
síðarnefndi fór skömmu á eftir Ferguson á tréverkið. Í stöðunni 95-94 í seinni framlengingunni nennti Brown þessu ekki lengur og tók málin ennfrekar í sínar hendur. Kappin fór hér á kostum, kom KR í 97-94, næst 99-94 með tveimur vítum og svo 101-94 með gegnumbroti og maðurinn skoraði í öllum regnbogans litum! Lokatölur reyndust 111-104 KR í vil og KR-ingar geta þakkað Brown fyrir að liðið verði með í næsta bikardrætti enda lygileg frammistaða hjá kappanum sem fékk 44 framlagsstig fyrir sína vasklegu framgöngu í kvöld. Martin Hermannsson var einnig traustur á lokasprettinum og fékk ansi vænar mínútur í reynslubankann.
22.01.2012 20:03Ótrúlegar tölur í sigri á FjölniSnæfell í undanúrslit eftir sigur á FjölniSnæfell komst í dag í undanúrlit í Poweradebikar kvenna í körfuknattleik með stórsigri á Fjölni, 90:45, í Grafarvoginum. Lokatölurnar voru í raun ótrúlegar því að loknum fyrri hálfleik var staðan 47:36 fyrir gestina úr Stykkishólmi. Fjölnir skoraði hins vegar 9 stig í síðari hálfleik og er úr leik í bikarkeppninni. Brittney Jones skoraði 30 stig fyrir Fjölni eða 2/3 af stigum liðsins í leiknum. Keiraah Marlow skoraði 32 stig fyrir Snæfell og Alda Leif Jónsdóttir 19 stig. 19.01.2012 22:03Snæfell með auðveldan sigur á HaukumTilþrifalítið í Snæfellssigri.
19.01.2012 21:59Naumt tap í hörkuleikKR hefndi í Hólminum í hörkuleik
KR mætti úr veðurofsanum í Hólminn en þar var rjómablíða að vanda. Snæfellsstúlkur tóku þar á móti þeim og voru fyrir leikinn í 5. sætinu með 16 stig en KR í 4. með 18 stig.
Anna María var sjóðheit utan þriggja stiga línunnar og setti sinn þriðja af þremur fyrir 50-52 KR í vil. Liðin skiptust á að skora og um miðjann fjórða hluta var staðan 53-56 fyrir KR og allt í járnum. Helga Hjörís átti flottann þrist til að jafna fyrir Snæfell 58-58 þegar um 3 mínútur voru eftir og átti hún fínann kafla og eftir mikið þref og vesen í sóknum Snæfells jafnaði hún aftur með þrist 63-63 og staðan var 65-65 þegar 30 sekúndur voru eftir.
16.01.2012 10:25Snæfell í 8-liða úrslit í unglingaflokki kvenna
15 01 2012
Snæfell í 8-liða úrslit í unglingaflokki kvennaGrindavíkurstúlkur léku í Hólminum í
16 liða úrslitum í bikarkeppni unglingaflokks kvenna síðasta föstudag og
voru heimastúlkur búnar að endurheimta Berglindi Gunnarsdóttur úr
meiðslum fyrir leikinn. Heimastúlkur byrjuðu leikinn af krafti og
leiddu 17-0 áður en fyrsta stigið kom hjá Grindavíkurstúlkum. Staðan
eftir fyrsta leikhluta 25-10. Annar leikhluti var í járnum þrátt
fyrir að Snæfell hafði náð 38-17 forystu og liðin skoruðu 15 stig hvort
og staðan í hálfleik 40-25. Heimastúlkur fengu frítt framlag frá öllum í
fyrri hálfleik og nýttu sér það inn í þriðja leikhlutann sem þær unnu
25-18 og leiddu 65-43. Sigurinn var aldrei í hættu en Rannveig hjá
Grindavík sýndi fína spretti í fjórða leikhluta en öflugar
Snæfellsstúlkur ætluðu sér áfram í bikarkeppninni og sigruðu 75-57. Stigaskor leikmanna Snæfells:
Hildur Björg Kjartansdóttir 23 stig, Sara Mjöll Magnúsdóttir 14, Ellen
Alfa Högnadóttir 13, Björg Guðrún Einarsdóttir 12, Berglind
Gunnarsdóttir 11 og Rebekka Rán Karlsdóttir 2. Aníta Rún Sæþórsdóttir og
Silja Katrín Davíðsdóttir léku en náðu ekki að skora. Stigaskor Grindavíkurstúlkna:
Rannveig Bjarnadóttir 17 stig, Jeanne Lois Sicat 10, Ingibjörg Yrsa
Ellertsdóttir 9, Jóhanna Styrmisdóttir 8, Mary Jean Sicat 6, Katrín
Rúnarsdóttir 4 og Ingibjörg Sigurðardóttir 3. Julia Lane Sicat náði ekki
að skora. Mynd/ Þorsteinn Eyþórsson 16.01.2012 10:24Nonni Mæju 3 stigameistari
14 01 2012 | 18:40Stjörnuleikur KKÍ - samantektStjörnuleikur KKÍ fór fram í Dalhúsum í dag þar sem margt var um manninn og mikið að sjá. Keppt var um titil troðslumeistara, þriggajstigaskyttu og hvort landsbyggðin eða höfuðborgarsvæðið hefði úr meiri hæfileikum að moða. Það fór þannig að Jón Ólafur Jónsson,
einnig þekktur sem Nonni Mæju, vann þriggjastiga keppnina. Nonni fékk
13 stig eða einu stigi meira en liðsfélagi sinn, Pálmi Sigurgeirsson sem
var í öðru sæti. Quincy Hankins-Cole vann troðslukeppnina eftir einvígi við heimamanninn Nathan Walkup. Hankins-Cole var vel að titlinum kominn og lét ekki þar við standa heldur sýndi oftar en ekki stórkostlegar troðslur í stjörnuleiknum sjálfum.
Stjörnuleikurinn var einkennileg útgáfa af íþróttinni sem við elskum eins og venja ber. Engum datt í hug að spila vörn fyrr en undir lok leiksins og fengu áhorfendur því að sjá skemmtileg tilþrif í bland við hlaup fram og til baka. Darren Govens, leikmaður Þórs frá Þorlákshöfn virtist finna sig virkilega vel með troðslumeistaranum Hankins-Cole en þeir félagar áttu líklega 4-5 bestu tilþrif leiksins saman. Hvort sem þeir hentu boltanum í spjaldið eða gólfið áður en hinn tróð þá tókst þeim alltaf að gera það mikilfenglegri máta en troðslan á undan. Ólafur Ólafsson áttu nokkrar skemmtilegar tilraunir í leiknum þó þær hefðu ekki allar gengið að óskum, hann tók sig því til og skipti sér útaf tvisvar í leiknum til þess að safna kröfum í næstu tilraun. Það skilaði honum einu af tilþrifum leiksins þegar hann blockaði þriggja stiga skot Robert Jarvis aðeins sentimetrum frá hringnum. Góðir dómarar leiksins litu sem betur fer framhjá hefðbundnum reglum leiksins og fjörið hélt áfram.
Mikilvægasti leikmaður stjörnuleiksins var Nathan Walkup en hann skoraði 20 stig í leiknum og átti mjög góðan leik í annars mjög jöfnu liði Höfuðborgarsvæðisins Hayward Fain, leikmaður Hauka var hins vegar stigahæstur í liðinu með 22 stig. Í liði Landsbyggðarinnar var Darren Govens lang stigahæstur með 41 stig en næstur var Quincy Hankins-Cole með 18 stig og líklega öll úr glæsilegum troðslum.
Mynd: www.kki.is 16.01.2012 10:22Quincy Gatoradeleikmaður 10. umferðarQuincy Gatoradeleikmaður 10. umferðar hjá Karfan.is
Karfan.is velur Gatoradeleikmann hverrar umferðar og fer það ekki endilega eftir hæsta framlagi umferðarinnar en auðvitað er horft til þess. Tilþrif og allskonar óvæntir þættir koma einnig við sögu en pennar, ljósmyndarar og aðstandendur Karfan.is greiða atkvæði og skiptast á skoðunum varðandi þá sem tilnefndir eru í hverri umferð.
08.01.2012 22:29Snæfell áfram í bikarkeppninni8. janúar 2012
Snæfell skákaði Stjörnunni í beinni
![]() Snæfellsstrákarnir fylgdu fordæmi stúlknanna og komust áfram í 8 liða úrslit Poweradebikarsins eftir að hafa lagt Stjörnuna 68-73. Leikurinn var svo sem ekkert augnayndi en mikið um mistök beggja liða en sterkari vörn Snæfells og klaufalegur sóknarleikur Stjörnunnar skóp muninn í öðrum leikhluta og staðan í hálfleik 30-33. Leikurinn hélt áfram á svipuðu nótum í seinni hálfleik og Snæfell komst í 44-51 eftir þriðja hluta en Pálmi Freyr var vítamínsprauta liðsins á góðum kafla. Snæfell komst þá í fjórða hluta í 10 - 12 stiga forystu en rétt undir lokin nálgaðist Stjarnan en of seint og Snæfell komst áfram.
Hreint magnað að sjá 25 tapaða bolta hjá Snæfelli sem Stjarnan nýtti ekki betur en Snæfellsmenn voru með ansi mikla smjörfingur á köflum og einnig fóru gríðalega mörg sóknarfráköst í hendur Stjörnumanna. Snæfellsvörnin hélt þó þokkalega og Stjörnumenn hitta gríðalega illa og skotnýting þeirra slök en t.d. tekur Justin Shouse 24 tveggja stiga skot og hittir úr 5. Snæfell var þá með 45% tveggja stiga nýtingu á móti 30% stjörnunnar og Snæfell var með góða vítanýtingu 17 af 22 niður.
Tölfræði leiksins af KKÍ Umfjjöllun og myndir á Karfan.is
Snæfell: Pálmi Freyr var maður leiksins, tók af skarið um miðbik leiksins og réðu Stjörnumenn ekkert við hann en hann endaði með 23 stig og 6 fráköst. Næstur honum var Quincy Cole með 15 stig, 15 fráköst og 5 stoðsendingar. Marquis Hall setti niður 15 stig, 6 fráköst og 5 stoðsendingar og stjórnaði hraðanum vel á köflum. Nonni Mæju smelti 9 stigum og tók 4 fráköst en fór heldur snemma af velli með 5 villlur. Sveinn Arnar bætti við 4 stigum og 2 fráköstum, Hafþór Gunnarssson 3 stigum. Ólafur Torfason 2/7 fráköst. Óskar Hjartarson 2/3 fráköst. Daníel Kazmi 0/2 fráköst. Magnús Ingi 0. Þorbergur Sæþórsson 0. Snjólfur Björnsson 0.
Stjarnan: Keith Cothran var sprækastur Stjörnumanna með 19 stig, 7 fráköst, 4 stoðsendingar og 4 stolna bolta. Justin Shouse, þrátt fyrir slaka nýtingu setti niður 17 stig tók 8 fráköst og gaf 7 stoðsendingar. Marvin Valdimarsson setti næstur 9 stig og tók 3 fráköst. Dagur Kár Jónsson var með 8/4 frák/4 stolna. Fannar Freyr skilaði 8/10 frák. Sigrjón Lárusson 5/10. Guðjón Lárusson 2/7 frák/ 3 stoðs. Jovan 0. Magnús 0. Aron 0. Chirstopher Sófus 0. Tómas 0.
Símon B Hjaltalín Mynd: Tomasz Kolodziejski / Karfan.is
08.01.2012 12:04Nú vann Snæfell7. janúar 2012
Snæfell skaust í 8 liða úrslitin
Snæfell og Valur mættust í annað sinn á innan við fjórum dögum í Stykkishólmi en núna í 16 liða úrslitum Poweradebikar kvenna. Signý Hermannsdóttir var komin í búning hjá Val.
![]()
![]()
Áhorfendur stóðu svo sannarlega fyrir sínu og sendu jákvæða orku úr stúkunni sem gaf oft tóninn í leik stúlknanna. Einkar gaman að sjá fólk fjölmenna á góðum laugardagi en allar dömur fengu frítt á leikinn sem gaf fallegann svip á stúkuna :)
06.01.2012 00:53Erfiður sigur á KróknumÓskar með sigurstigið gegn Tindastóli
Það voru Snæfelllingar sem fóru með sigurinn í Hólminn eftir baráttuleik gegn Tindastóli 99-100 eftir eitt stykki framelngingu. Óskar Hjartarson var hetja Snæfells í sínum fyrsta leik og skoraði síðasta stig leiksins úr víti og kom Snæfelli í 100-99.
Snæfell hóf leikinn betur komust fljótt í 6-16 og eftir fyrsta hluta var staðan 17-24 fyrir Snæfell. Í hálfleik var staðan 36-42 fyrir Snæfell sem leiddu allann leikinn. Eftir þriðja hluta höfðu Tindastólsmenn ekki náð að koma sér nær Snæfelli og staðan 59-71 sem er enginn munur í körfubolta þegar heillleikhluti er eftir. Það kom á daginn og Tindastóll hélt af stað í heljarinnar baráttu sem skilaði þeim 12 stiga áhlaupi að komast úr 63-78 í 75-78. Þegar staðan vaar 78-80 og 1:30 eftir smellti Friðrik Hreinsson þrist og Tindastóll komst yfir 81-80. Marquis Hall fékk svo tvö víti þegar 3 sekúndur voru eftir og klikkaði á því fyrra en setti niður seinna 81-81 og framlenging raunin en bæði niður hefðu fært sigurinn fyrr.
Það var svo allt í járnum í framlengingunni og hvorugt liðið tók rispu sem skildi það frá hinu. Óskar kom inná þegar Ólafur fékk sína fimmtu villu og staðan var 94-95 fyrir Snæfell. Það var Þröstur Leó sem jafnaði 99-99 úr tveimur vítum og Maurice Miller braut á Óskari Hjartarsyni þegar 4 sekúndur voru eftir og klikkaði hann á fyrra skotinu en smelti niður því seinna sem var nóg til að klára sigurinn og loksins féll naumur leikur Snæfellsmegin.
05.01.2012 01:29Tap hjá Snæfell gegn ValSnæfell-Valur 72-87 (26-29, 15-18, 14-21, 17-19) Snæfell:
Kieraah Marlow 26/4 fráköst, Hildur Sigurdardottir 15/8 fráköst, Hildur
Björg Kjartansdóttir 10/11 fráköst, Alda Leif Jónsdóttir 8, Helga
Hjördís Björgvinsdóttir 4, Björg Guðrún Einarsdóttir 4, Ellen Alfa
Högnadóttir 3, Berglind Gunnarsdóttir 2, Sara Mjöll Magnúsdóttir 0, Rósa
Indriðadóttir 0, Aníta Sæþórsdóttir 0. Valur:
Melissa Leichlitner 26/5 fráköst/5 stolnir, Kristrún Sigurjónsdóttir
18/4 fráköst, María Ben Erlingsdóttir 18, Guðbjörg Sverrisdóttir 11/8
fráköst, María Björnsdóttir 4, Þórunn Bjarnadóttir 3, Unnur Lára
Ásgeirsdóttir 3/4 fráköst, Hallveig Jónsdóttir 2, Lacey Katrice Simpson
2/7 fráköst, Kristín Óladóttir 0, Ragnheiður Benónísdóttir 0, Berglind
Karen Ingvarsdóttir 0. 05.01.2012 01:26Óskar Hjartarson í Snæfell
Óskar Hjartarson hefur ákveðið að uppfæra sig innan körfuboltans í Stykkishólmi og færa sig úr 2. deildar liði Mostra yfir í Iceland express deildar lið Snæfells. Óskar verður án efa styrkur fyrir Snæfell og er hann alls ekki ókunnugur hópnum, uppalinn Snæfellingurinn.
Óskar hefur spilað með Mostra og verið einn af þeirra burðarásum en í tölum hefur hann verið framlagshæstur að meðaltali 26.8 stig. Og svo 19.8 stig, 8.2 fráköst og 3.7 stoðsendingar að meðaltali í leik.
Við lögðum spilin á borðið með Óskari og smelltum nokkrum laufléttum á hann.
Hver er helsta ástæða að þú ferð frá borði í Mostra yfir í Snæfell?
Samningur minn við Mostra rann út núna um áramótin og þeir höfðu ekki áhuga á að endurnýja hann, sem eru vissulega vonbrigði fyrir mig.
Mikil áskorun að fara frá efsta liði ykkar riðils í 2.deild og upp í úrvalsdeildarlið?
Já það er mikil áskorun en mjög spennandi. Þetta er einhvað sem manni hefur dreymt um að prufa en tímaleysi hefur verið helsta hindrunin.
Já þetta kemur mér frekar á óvart en þessi deild er mjög jöfn sem gerir þetta enþá skemmtilegra. Þessir jöfnu leikir hafa ekki verið að falla með Snæfell. Ég veit að það verður viðsnúningur á nýju ári, þetta er mjög sterkur hópur sem ætlar sér stóra hluti á nýjur ári.
Eitthvað ferskt sem þú kemur með inní liðið á nýju ári?
Já við Óli Torfa höfum ákveðið að hafa ábrystir í öllum brúsum á bekknum, og sviðasultu í hálfleik.
-sbh-
|
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 541 Gestir í dag: 93 Flettingar í gær: 632 Gestir í gær: 101 Samtals flettingar: 825824 Samtals gestir: 85937 Tölur uppfærðar: 5.2.2012 20:29:10 |